English Icelandic
Birt: 2015-04-17 11:52:20 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Úrskurður yfirskattanefndar

Icelandair Group hf. barst í dag úrskurður yfirskattanefndar dags. 15. apríl sl. Með honum er kröfum Icelandair Group um að felldur verði úr gildi úrskurður Ríkisskattstjóra dags. 18. desember 2013 hafnað. Í úrskurði Ríkisskattstjóra var gjaldfærður fjármagnskostnaður gjaldárin 2008-2012 lækkaður með vísan til dóms Hæstaréttar í máli nr. 555/2012 frá 28. febrúar sl. (Toyota á Íslandi ehf. gegn íslenska ríkinu). Þetta þýðir að yfirfæranlegt tap Icelandair Group hf. minnkar um allt að 6,4 milljarða króna. Stjórnendur Icelandair Group hf. munu yfirfara forsendur yfirskattanefndar og meta hvort að skjóta eigi málinu til Héraðsdóms Reykjavíkur. Ef málið tapast að fullu fyrir dómstólum þá getur eigið fé félagsins lækkað um allt að 1,3 milljarða króna (9,6 milljón USD).

 

Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801