Icelandic
Birt: 2015-04-16 11:04:47 CEST
Síminn hf.
Fyrirtækjafréttir

Síminn og Skjárinn sameinast

•   Síminn mun nú bjóða fjórþætta þjónustu; talsíma, farsíma, netþjónustu og sjónvarpsefni

•   Betri þjónusta við viðskiptavini og hagræðing í rekstri

•   Skjáreinn, Skjárbíó, Skjárkrakkar, Skjárheimur, Skjársport og Útvarpsstöðin K100,5 færast til Símans

•   Kemur í kjölfar sáttar við Samkeppniseftirlitisins um að aflétta hluta af kvöðum frá árinu 2005

 

Ákveðið hefur verið að sameina Símann og Skjáinn. Öll starfsemi Skjásins á sviði miðlunar og afþreyingar færist til Símans og verður rekin af Símanum. Sú þjónusta sem um ræðir eru Skjáreinn, Skjárbíó, Skjárkrakkar, Skjárheimur, Skjársport og Útvarpsstöðin K100,5. Eftir sameininguna býður Síminn fjórþætta þjónustu; talsíma, farsíma, netþjónustu og sjónvarpsefni. Svo öflugt þjónustuframboð er í samræmi við þróunina erlendis þar sem afþreying og sjónvarpsefni tengjast fjarskiptaþjónustu sífellt sterkari böndum.

Sameiningin kemur í kjölfar sáttar við Samkeppniseftirlitið um að aflétta hluta af þeim kvöðum sem lagðar voru á Símann og Skjáinn á árinu 2005.

Starfsemi Skjásins flyst mestu í húsnæði Símans í Ármúla 25 á næstu vikum. Starfsfólk Skjásins verður starfsfólk Símans eftir sameiningu. Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins mun vinna að sameiningunni með stjórnendum og starfsfólki Símans og Skjásins en lætur svo af störfum, þar sem ekki verður sérstök yfirstjórn yfir sjónvarpsstarfsemi Símans.

Orri Hauksson, forstjóri Símans, segir markmiðið með sameiningunni að bæta þjónustu við viðskiptavini og jafnframt að ná fram hagræðingu í rekstrinum: „Þetta eru mjög spennandi breytingar fyrir viðskiptavini Símans þar sem afþreying og sjónvarpsefni verða nú í auknum mæli hluti af þjónustuframboði Símans. Breytt skipulag gerir viðskiptavinum okkar kleift að nálgast alla þjónustu á einum stað.  Sameiningin kemur í kjölfar mikilla breytinga á fjölmiðla- og fjarskiptamarkaði á undanförnum árum. Við höfum viljað breyta þeim kvöðum sem voru settar á sínum tíma og endurspegluðu stöðu sem er ekki til staðar lengur á markaðnum. Það er ljóst að þessu skrefi mun fylgja  töluverð rekstrarhagræðing þar sem við rekum í einhverjum tilvikum svipaðar einingar á tveimur stöðum. Í kjölfar sameiningar mun ekki verða sérstök yfirstjórn yfir þeim þjónustuþáttum sem færast til Símans. Ég vil þakka Friðrik kærlega fyrir vel unnin störf á undanförnum árum og óska honum velfarnaðar.“

Friðrik Friðriksson fráfarandi framkvæmdastjóri Skjásins: „Það er skynsamlegt skref að sameina Símann og Skjáinn í kjölfar nýrrar sáttar við Samkeppnieftirlitið. Fram að þessu var sameining ekki möguleg og okkur er flestum ljóst að núverandi fyrirkomulag aftraði framþróun beggja fyrirtækja Símans og Skjásins við að bæta þjónustuframboð sitt.  Skjárinn hefur aldrei staðið betur en einmitt nú og ég er stoltur af þeim árangri sem náðst hefur með félagið á undanförnum árum og er viss um að þessi eðlilega breyting sé til farsældar bæði fyrir viðskiptavini Skjásins og starfsfólk félagsins.“

Með sáttinni er ákveðið að rekstur innlendrar línulegrar sjónvarpsdagskrár skuli vera efnahagslega og bókhaldslega aðskilinn frá öðrum rekstri Símans. Eftirlitsnefnd um jafnan aðgang fjarskiptafyrirtækja, EJAF, er ætlað að hafa eftirlit með framkvæmd sáttarinnar. 

 

Frekari upplýsingar veitir Pétur Þ. Óskarsson, yfirmaður samskipta Símans, farsími 863-6075.