Icelandic
Birt: 2015-04-15 12:59:52 CEST
TM hf.
Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hluta

Lækkun hlutafjár í Tryggingamiðstöðinni hf.

Eins og áður hefur verið tilkynnt var samþykkt á aðalfundi Tryggingamiðstöðvarinnar hf. 12. mars 2015 að lækka hlutafé félagsins úr 760.393.888 krónum í 739.393.888 krónur að nafnverði með því að eyða hlutum í eigu félagsins sem lækkuninni nemur.  Lagaskilyrðum fyrir lækkun hlutafjárins hefur nú verið fullnægt og lækkunin því verið framkvæmd.

Niðurfærslan hefur ekki áhrif á hlutafé í eigu annarra hluthafa en félagsins sjálfs.