Icelandic
Birt: 2015-03-25 14:46:14 CET
RARIK ohf.
Fyrirtækjafréttir

Rarik ohf. og Landsbankinn hafa gengið frá skammtímafjármögnunarsamningi.

RARIK og Landsbankinn undirrituðu í dag samning vegna skammtímafjármögnunar. Samningurinn gerir RARIK kleift að velja sér hagkvæman tíma til endurfjármögnunar langtímalána sem fyrirhuguð er á árinu, án tillits til gjalddaga þeirra.

Samningsfjárhæðin er 4.750 milljónir króna og tekur samningurinn gildi í dag og gildir til 5. maí 2016.  Samningurinn felur í sér að RARIK hefur heimild til þess að nýta lánsfjárhæðina eftir þörfum.

Nánari upplýsingar veitir Tryggvi Þór Haraldsson, forstjóri RARIK í síma 528-9000.