English Icelandic
Birt: 2015-03-25 11:50:05 CET
NASDAQ Iceland hf.
Markaðstilkynningar

Nasdaq Iceland samþykkir töku hluta í Reitum fasteignafélagi hf. til viðskipta á Aðalmarkaði að uppfylltum skilyrðum um dreifingu hlutafjár

NASDAQ OMX Iceland hf. („Kauphöllin“) hefur samþykkt umsókn stjórnar Reita fasteignafélags hf. („Reitir“) (kt. 711208-0700) um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Kauphallarinnar. Samþykkið er háð því að félagið uppfylli skilyrði reglna fyrir útgefendur fjármálagerninga á NASDAQ OMX Iceland hf. um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag. Gert er ráð fyrir að fyrsti viðskiptadagur með hluti Reita á Aðalmarkaði verði 9. apríl, 2015. Kauphöllin mun tilkynna um fyrsta viðskiptadag með minnst eins viðskiptadags fyrirvara.