Icelandic
Birt: 2015-03-24 10:45:45 CET
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. : Stefna vegna innbrots í tölvukerfi
Fjarskiptum hf. hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna
tjóns
sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar
erlends
tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið
dreifingu
þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Gerð er krafa um skaða- og
miskabætur
að fjárhæð kr. 90.000.000 auk vaxta og málskostnaðar. Er þetta önnur
stefnan
vegna innbrotsins, sbr. fyrri tilkynning dags. 3. febrúar 2015.

Sem
fyrr telur félagið verulegan vafa leika á bótaskyldu og að dæmdar
fjárhæðir,
telji dómstólar bótaskyldu yfir höfuð til staðar, hafi í öllu falli
óveruleg
áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Fyrir liggur að stefnufjárhæð er
í engu
samræmi við dómafordæmi í skaða- og miskabótamálum hér á landi. Gerð
verður
grein fyrir þessari og mögulegum frekari málshöfðunum í
skýringum
ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því sem við getur
átt.


[HUG#1905776]