English Icelandic
Birt: 2015-03-23 11:54:59 CET
Marel hf.
Fyrirtækjafréttir

Marel endurskipuleggur starfsemi sína í Danmörku

Framleiðslustarfsemi Marel í Bornholm, Danmörku verður sameinuð starfseiningu félagsins í Aarhus, Danmörku. Framleiðslustarfsemi Marel í Bornholm sem nær yfir þróun og framleiðslu á háþróuðum hlutunarlausnum (e. portioning) fyrir fisk-, kjúklinga- og kjötiðnað verður flutt til Aarhus sem er miðstöð Marel fyrir lausnir á sviði pökkunar og þjarka (e. fixed weight packaging and robotics)

 Flutningurinn mun verða til þess að starfsemi félagsins í hlutunarlausnum verður sameinuð undir einu þaki sem mun styðja þessa starfsemi innan félagsins og styrkja samkeppnis- og markaðsstöðu félagsins á þessu sviði. Rekstrarniðurstaða þessarar starfsemi hefur verið góð og mun flutningurinn gera félaginu kleift að auka skilvirkni og vera betur í stakk búið fyrir frekari framgang og vöxt á þessu sviði.

Flutningar á framleiðslustarfsemi frá Bornholm til Aarhus munu hefjast í mars 2015 og verður aðgerðinni að fullu lokið fyrir árslok 2015. Aðgerðin nær til um það bil 40 starfsmanna og mun Marel í gegnum allt ferlið styðja við þá starfsmenn sem aðgerðirnar hafa áhrif á og verður þeim m.a. boðið að flytja til Aarhus.

Aðgerðin er í samræmi við markmið áætlunarinnar um einfaldara og skilvirkara Marel (e. Simpler, Smarter, Faster) og styður þá stefnu félagsins að auka slagkraftinn á þeim sviðum þar sem félagið hefur skýrt samkeppnisforskot og sterka markaðsstöðu