Icelandic
Birt: 2015-03-19 16:21:09 CET
TM hf.
Fyrirtækjafréttir

Tryggingamiðstöðin fær styrkleikamat frá A.M. Best

Matsfyrirtækið A.M. Best hefur metið fjárhagslegan styrkleika Tryggingamiðstöðvarinnar (TM) og er einkunnin B++. TM hefur þegar mat á fjárhagslegum strykleika frá matsfyrirtækinu Standard & Poor's (S&P's) og er sú einkunn BBB- en það er sama einkunn og S&P hefur veitt langtímaskuldbindingum íslenska ríkisins. Matseinkunn A.M. Best er samsvarandi við BBB+ einkunn á matskvarða Standard & Poor's. Mat A.M. Best nær einnig til lánshæfis og fær TM lánshæfiseinkunnina bbb+.

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM:

„TM hefur frá árinu 2007 verið með styrkleikamat frá S&P, eitt íslenskra tryggingafélaga.  Matið veitir TM tækifæri til að sækja vátryggingaviðskipti á erlenda markaði og er því mikilvægur liður í vaxtarmöguleikum félagsins. Mat A.M. Best sem er sérhæft í mati á vátryggingafélögum styrkir frekar stoðir félagsins á því sviði“.

Meðfylgjandi er fréttatilkynning A.M. Best frá 18. mars um niðurstöður matsins á TM.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Sigurður Viðarsson, forstjóri TM

S: 515-2609

sigurdur@tm.is


Frettatilkynning A.M. Best_ 031801TM.pdf