Icelandic
Birt: 2015-03-18 16:18:46 CET
Jeratún ehf.
Reikningsskil

Ársreikningur Jeratúns ehf. árið 2014

Ársreikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við nýja og endurbætta staðla (IFRS/IAS) og túlkanir (IFRIC) sem tóku gildi á reikningsárinu.

Ársreikningur Jeratúns ehf. fyrir árið 2014 var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 18. mars 2015.

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar, Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga.

Hagnaður félagsins á árinu 2014 var 14.685 þús. kr. og í lok þess var eigið fé jákvætt sem nemur 50.211 þús. kr. skv. ársreikningi. Stjórnin mun leggja það til við hluthafafund félagsins að hlutafé verði aukið um 18 milljónir króna.

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með ábendingu.

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok ársins námu eftirstöðvar lána um 396 millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánanna.

Félagið er með leigusamning við Menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur eru kr. 60.429 þús. kr. á ársgrundvelli með virðisaukaskatti og eru verðtryggðar með vísitölu neysluverðs.

Sturla Böðvarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.


Arsreikningur 2014.pdf
Frettatilkynning Jeratuns vegna arsins 2014.pdf