English Icelandic
Birt: 2015-03-16 10:14:15 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Breyttar áherslur í flugflota dótturfélaga Icelandair Group

Stjórn Icelandair Group hefur samþykkt að gera áherslubreytingar á flugflotastefnu dótturfélaganna Flugfélags Íslands og Icelandair. 

Allar fimm Fokker 50 vélar Flugfélags Íslands verða seldar og þrjár Bombardier  Q400 munu koma í þeirra stað.  Eftir breytinguna verður Flugfélag Íslands með fimm flugvélar í rekstri, þrjár Q400 og tvær Bombardier  Q200.  Q400 flugvélarnar taka 74 farþega en Fokker 50 flugvélarnar taka 50 farþega.  Við þessa breytingu verður einföldun og hagræðing í rekstri Flugfélagsins þar sem flugvélum fækkar auk þess sem samlegð er mun meiri í rekstri nýja flotans en þeim gamla þar sem allar flugvélarnar verða frá sama framleiðanda.  Q400 vélarnar eru jafnframt hraðskreiðari og langdrægari en Fokker 50 flugvélarnar og því sér félagið fram á tækifæri til sóknar á nýja markaði.  Með nýju flugvélunum verður hægt að sinna innanlandsmarkaðnum betur þar sem um stærri vél er að ræða auk þess sem ferðatími styttist aðeins.  Félagið stefnir að því að fjölga erlendum ferðamönnum enn frekar um borð í flugvélum félagsins.

Á árinu 2015 verða 23 Boeing 757-200 flugvélar í rekstri Icelandair sem taka 183 farþega og ein 757-300 flugvél sem tekur 220 farþega.  Af þessum 24 flugvélum eru 22 í eigu félagsins en tvær á leigu og verður þeim skilað næsta haust.  Tekin hefur verið ákvörðun um að leysa þær af hólmi með tveimur Boeing 767-300 vélum sem taka um 260 farþega. Þær munu fljúga í leiðarkerfinu frá og með vorinu 2016.  Há sætanýting á mörgum flugleiðum félagsins allan ársins hring, auk takmarkana á afgreiðslutímum á sumum flugvöllum gerir það fýsilegt að taka inn stærri flugvélar.  Jafnframt hefur stækkun flugflota félagsins undanfarin ár gert það að verkum að það er aukin hagkvæmni í því að hafa fleiri stærðir af flugvélum í flotanum.  Boeing 767 flugvélarnar eru um margt líkar Boeing 757 flugvélunum hvað varðar viðhald og þjálfun áhafna og þekkir félagið rekstur slíkra véla vel.  Loftleiðir-Icelandic, dótturfélag Icelandair Group, hefur um árabil verið með slíkar vélar í leiguverkefnum og hefur Icelandair séð um viðhald þeirra. Boeing 767 flugvélarnar eru mun langdrægari en Boeing 757 vélarnar og með þeim munu skapast ný tækifæri fyrir leiðarkerfi Icelandair.

Á þessu stigi liggur ekki fyrir hvort flugvélarnar verði leigðar eða keyptar.

Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group: „Það hefur verið mikið hagræði af því að hafa einsleitan flota hjá Icelandair en þegar leiðarkerfið og flugflotinn nær ákveðinni stærð þá verður það fýsilegra að hafa fleiri stærðir flugvéla í flotanum.  Há sætanýting allan ársins hring auk takmarkana á afgreiðslutímum á sumum flugvöllum styðja jafnframt við þessa ákvörðun. Hvað varðar Flugfélag Íslands þá mun einföldun flotans skila meiri breidd í framboði auk þess sem  þjálfun áhafna verður einfaldari.

Með þessum áherslubreytingum í flugflota í farþegaflugi Icelandair Group sjáum við fram á aukin vaxtartækifæri á komandi árum.  Bæði Boeing 767 flugvélarnar og Q400 flugvélarnar geta sinnt mörkuðum sem núverandi flugvélakostur getur ekki og með þeim getum við farið inn á fleiri markaðssvæði en áður og tengt þau við núverandi leiðarkerfi.“  

 

 

Frekari upplýsingar veita:

 

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801