Icelandic
Birt: 2015-03-12 11:49:38 CET
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. : Síminn hf. krefur Fjarskipti hf. um skaðabætur
Fjarskipti hf. hefur borist krafa frá Símanum um skaðabætur vegna
meintrar
ólögmætrar notkunar á vörumerkinu Tímaflakk. Krafan er að fjárhæð 400
milljónir
króna. Fjarskipti hf. telja ekki grundvöll fyrir kröfunni.
Ágreiningur er um
skráningu Símans á vörumerkinu sem ekki hefur verið til lykta
leiddur. Fyrir
liggur nýlegur úrskurður Einkaleyfastofu, frá 12. febrúar 2015,
sem kveður á um
að skráning Símans á orðmerkinu Tímaflakk skuli halda gildi
sínu. Fjarskipti hf.
hafa ákveðið að bera úrskurðinn undir áfrýjunarnefnd í
vörumerkjamálum. Auk þess
telur Fjarskipti hf. fjárhæð bótakröfunnar í engu
samræmi við málsatvik og
dómafordæmi.


[HUG#1902744]