English Icelandic
Birt: 2015-03-09 14:37:34 CET
Orkuveita Reykjavíkur
Fyrirtækjafréttir

Orkuveitan og Dexia Credit Local semja um breytingu á gjalddögum

Reykjavík, 2015-03-09 14:37 CET -- Orkuveita Reykjavíkur og Dexia Credit Local hafa komist að samkomulagi um endurröðun gjalddaga á lánum bankans. Með breytingunum er afborgunum dreift meira en áður var gert ráð fyrir og fela þær í sér endurfjármögnun á alls 33,3 milljónum evra, sem greiðast áttu í október næstkomandi, en jafnframt er endurgreiðslutími lengri lána styttur. Veginn meðallíftími lána breytist óverulega og vaxtaálag er óbreytt.

Með samkomulaginu eru afborganir OR jafnari og er það í takti við aukinn stöðugleika í rekstri fyrirtækisins, sem unnið hefur verið að með aðhaldi í rekstri og auknum áhættuvörnum.

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur hefur samþykkt breytinguna með fyrirvara um staðfestingu eigenda OR.