English Icelandic
Birt: 2015-03-06 16:46:10 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur febrúar 2015

Í febrúar flutti félagið yfir 143 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 24% fleiri en í febrúar á síðasta ári. Framboðsaukning  á milli ára í febrúar nam 19%. Sætanýting var 77,7% og jókst um 4,5 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í febrúar áður.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í febrúar sem er fækkun um 2% á milli ára.  Framboð félagsins í febrúar var dregið saman um 6% samanborið við febrúar 2014. Sætanýting nam 74,3% og jókst um 4,1 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 7% á milli ára.  Fraktflutningar drógust saman um 0,7% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 10% miðað við febrúar á síðasta ári. Herbergjanýting var 79,9% en hún nam 72,6% í febrúar í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG FEB 15 FEB 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 143.609 115.889 24% 294.239 240.610 22%
Sætanýting 77,7% 73,2% 4,5 %-stig 77,2% 71,8% 5,5 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 528,3 443,4 19% 1.118,5 962,6 16%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG FEB 15 FEB 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 20.293 20.649 -2% 39.930 41.033 -3%
Sætanýting 74,3% 70,2% 4,1 %-stig 70,6% 69,6% 1,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 8,6 9,1 -6% 17,6 18,4 -4%
             
LEIGUFLUG FEB 15 FEB 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 93,8% 93,0% 0,8 %-stig
Seldir blokktímar 1.686 1.820 -7% 3.354 4.307 -22%
             
FRAKTFLUTNINGAR FEB 15 FEB 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.546 12.422 17% 29.589 26.056 14%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.452 7.504 -1% 15.108 15.486 -2%
             
HÓTEL FEB 15 FEB 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 20.692 20.720 0% 43.601 43.660 0%
Seldar gistinætur 16.537 15.051 10% 31.928 26.839 19%
Herbergjanýting 79,9% 72,6% 7,3 %-stig 73,2% 61,5% 11,8 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 


Traffic Data - February 2015.pdf