English Icelandic
Birt: 2015-03-03 16:17:39 CET
Arion banki hf.
Fyrirtækjafréttir

Arion banki gefur út skuldabréf í evrum:

Stærsta skuldabréfaútgáfa íslensks banka um árabil til breiðs hóps alþjóðlegra fjárfesta

Arion banki hefur gefið út skuldabréf að upphæð 300 milljónir evra eða sem nemur um 45 milljörðum íslenskra króna. Í heild bárust tilboð frá um 100 fjárfestum fyrir rúmlega 675 milljónir evra. Umframeftirspurn var því ríflega tvöföld. Skuldabréfin eru til þriggja ára og bera fasta 3,125% vexti, og voru seld á kjörum sem jafngilda 3,10% álagi yfir millibankavexti. Um er að ræða fyrstu útgáfu íslensks banka í evrum sem seld er til breiðs hóps fjárfesta, allt frá endurreisn fjármálakerfisins.  

Á síðasta ári samdi Arion banki við Citi, Deutsche Bank og Nomura um skipulagningu funda með evrópskum fjárfestum. Markmiðið var að gefa út skuldabréf í evrum þegar markaðsaðstæður væru réttar. Undanfarið hafa lánsfjármarkaðir þróast með jákvæðum hætti og í kjölfar sterks uppgjörs bankans sköpuðust aðstæður til skuldabréfaútgáfu af þessari stærðargráðu.

Til stendur meðal annars að nýta hluta lánsins til að greiða niður önnur og óhagstæðari lán og lækka þannig fjármögnunarkostnað bankans. Einnig munu fyrirtæki í viðskiptum við bankann, sem þörf hafa fyrir erlenda fjármögnun, njóta góðs af auknu aðgengi að erlendu lánsfé.

Skuldabréfaútgáfan nú er rökrétt framhald af markvissri vinnu undanfarinna ára. Snemma árs 2013 gaf bankinn út skuldabréf í norskum krónum og var þar með fyrsta íslenska fjármálafyrirtækið til að sækja sér erlenda fjármögnun frá árinu 2007. Í upphafi árs 2014 fékk bankinn svo lánshæfismatið BB+ frá alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækinu Standard & Poor‘s, fyrstur íslenskra banka. Síðar á árinu var horfum breytt úr stöðugum í jákvæðar. Lánshæfismat frá S&P er þýðingarmikið í þessu samhengi og stækkar til mikilla muna þann hóp fjárfesta sem áhuga hefur á skuldabréfum bankans. 

Höskuldur H. Ólafson, bankastjóri Arion banka:

„Undanfarin ár hefur verið unnið ötullega að því að auka fjölbreytni í fjármögnun bankans og bæta aðgengi að erlendum lánsfjármörkuðum. Þar er bankinn í fararbroddi íslenskra banka. Útgáfan nú er langstærsta skuldabréfaútgáfa íslensks banka um árabil sem seld er til breiðs hóps alþjóðlegra fjárfesta. Um er að ræða afrakstur vinnu undanfarinna ára og um mikilvægan áfanga að ræða. Skuldabréfaútgáfan nú er ekki aðeins mikilvæg fyrir okkur og viðskiptavini okkar heldur einnig fyrir efnahagslífið hér á landi, þar sem aðgengi erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum skiptir miklu fyrir áframhaldandi uppbyggingu.“

 

Nánari upplýsingar veitir Haraldur Guðni Eiðsson, forstöðumaður samskiptasviðs Arion banka, haraldur.eidsson@arionbanki.is, s: 856 7108.