English Icelandic
Birt: 2015-02-26 20:02:19 CET
Eimskipafélag Íslands hf.
Reikningsskil

Eimskip kynnir afkomu ársins 2014

  • Rekstrartekjur voru 451,6 milljónir evra, jukust um 17,7 milljónir evra eða 4,1% frá 2013
  • EBITDA nam 38,5 milljónum evra, hækkaði um 1,5 milljónir evra eða 4,0% frá 2013
  • Hagnaður eftir skatta var 13,6 milljónir evra, jókst um 2,8 milljónir evra eða 25,8% frá 2013
  • Flutningsmagn í áætlunarsiglingum á Norður-Atlantshafi jókst um 7,9% á milli ára
  • Flutningsmagn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,0% á milli ára
  • Eiginfjárhlutfall var 65,2% og nettóskuldir námu 24,9 milljónum evra í árslok
  • Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður sem samsvarar 45,7% af hagnaði ársins
  • Áætluð EBITDA ársins 2015 er á bilinu 39 til 44 milljónir evra

Gylfi Sigfússon forstjóri

„Fjórði ársfjórðungur var í samræmi við væntingar með 11,2% vöxt í tekjum frá fjórða ársfjórðungi 2013 og EBITDA að fjárhæð 8,8 milljónir evra sem var 12,2% hærra en á sama tímabili 2013. Rekstrartekjur ársins 2014 námu 451,6 milljónum evra og jukust um 4,1% á milli ára. EBITDA ársins nam 38,5 milljónum evra og jókst um 4,0% frá 2013. Hagnaður ársins eftir skatta nam 13,6 milljónum evra og jókst um 25,8% á milli ára.

Flutningsmagn í áætlunarsiglingum félagsins á Norður-Atlantshafi jókst um 7,9% frá fyrra ári. Verulegur vöxtur var í flutningum til og frá Íslandi og Færeyjum. Flutt magn í frystiflutningsmiðlun jókst um 11,0% frá 2013, einkum vegna flutninga innan Asíu, nýrra vöruflokka, nýrra markaða og aukinna flutninga þar sem Eimskip annast tollafgreiðslu og flutning vörunnar alla leið.

Eimskip gerði breytingar á siglingakerfi sínu á fyrsta ársfjórðungi 2014 og í febrúar 2015 með það að leiðarljósi að auka afkastagetu og áreiðanleika kerfisins og styrkja þar með enn frekar þjónustu við viðskiptavini félagsins. Á árinu 2014 var gráu leiðinni bætt við í siglingum á milli Færeyja og Skotlands og breytingar voru gerðar á viðkomum rauðu leiðarinnar sem tengdi strandsiglingar á Íslandi við Evrópu. Í febrúar 2015 voru rauða leiðin og græna leiðin, sem siglir á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomu í Sortland í Noregi, sameinaðar undir nafni grænu leiðarinnar með þrjú gámaskip í siglingum. Nýja græna leiðin mun sigla óslitið á milli Evrópu og Norður-Ameríku með viðkomur í höfnum á Íslandi til að þjóna íslenskum inn- og útflytjendum. Með breytingunni eykst tíðni ferða á milli Evrópu og Norður-Ameríku um allt að fimm ferðir á ári. Félagið mun í samstarfi við hafnaryfirvöld í Halifax og Halterm gámahöfnina styrkja þjónustu sína á milli Bandaríkjanna og Kanada.

Stjórn og stjórnendur Eimskips hafa varið töluverðum tíma í mat á mögulegum fjárfestingartækifærum í leit félagsins að tækifærum til vaxtar og til að styrkja stöðu félagsins á mörkuðum utan Íslands. Þetta er í samræmi við þá stefnu félagsins að vera leiðandi flutningafélag á Norður-Atlantshafi.

Fyrstu tvo mánuði þessa árs hefur Eimskip farið í samstarf, stofnað og fjárfest í ýmsum fyrirtækjum og uppbyggingarverkefnum. Flutningsmiðlunarfyrirtækið Jac. Meisner í Rotterdam í Hollandi var keypt og nýtt félag um skiparekstur var stofnað í Hamborg í Þýskalandi í samstarfi við König & Cie. Eimskip í Danmörku tók yfir vöruhúsarekstur Damco í Árósum sem gerir Eimskip að stærsta rekstraraðila í vöruhúsaþjónustu í þessari næststærstu höfn Skandinavíu. Eimskip keypti í samstarfi við Harbour Grace Shrimp Company Ltd. rekstur frystigeymslunnar í St. Anthony á Nýfundnalandi, en Eimskip hefur siglt til St. Anthony frá árinu 2005. Eimskip hefur einnig undirritað kaupsamning við eigendur flutningsmiðlunarfyrirtækisins Cargocan í St. John‘s á Nýfundnalandi um kaup á öllu hlutafé félagsins. Heildarfjárfestingin í þessum fyrirtækjum nemur um 6 milljónum evra og er gert ráð fyrir að hún auki rekstrartekjur Eimskips um 16 milljónir evra á ársgrundvelli og er áætlað að EBITDA hlutfall verði á bilinu 8-10%.

Í byrjun þessa árs hóf Eimskip framkvæmdir við byggingu á 10 þúsund tonna frystigeymslu félagsins í Hafnarfirði. Félagið hefur einnig fjárfest í uppbyggingarverkefnum á Íslandi með kaupum á þremur lóðum á Grundartanga og tveim hafnarkrönum. Eimskip mun halda áfram meta möguleg fjárfestingartækifæri á komandi mánuðum og eru ýmis verkefni í vinnslu.

Bygging á Bakkafossi, 875 gámaeininga skipi, hefur ekki gengið samkvæmt áætlun og félagið gerir ráð fyrir frekari töfum á afhendingu sem áætluð hafði verið á fjórða ársfjórðungi þessa árs. Eimskip metur nú stöðuna í ljósi frekari tafa. Félagið hefur þegar greitt 11,4 milljónir evra vegna fjárfestingarinnar. Greiðslurnar til skipasmíðastöðvarinnar eru tryggðar af fyrsta flokks banka í eigu kínverska ríkisins ef Eimskip ákveður að óska eftir endurgreiðslu þess sem þegar hefur verið greitt.

Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa á árinu 2015 sem nemur 5,00 krónum á hlut. Nemur heildarfjárhæð arðgreiðslunnar 933,2 milljónum króna, eða 6,2 milljónum evra, sem samsvarar 45,7% af hagnaði ársins 2014.

Afkomuspá okkar fyrir árið 2015 er EBITDA á bilinu 39 til 44 milljónir evra.“

  Frekari upplýsingar

  • Gylfi Sigfússon forstjóri, sími: 525 7202
  • Hilmar Pétur Valgarðsson, framkvæmdastjóri fjármála- og stjórnunarsviðs, sími: 525 7202
  • Erna Eiríksdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla, sími: 825 7220, netfang: investors@eimskip.is

 

 


Eimskip - Consolidated Financial Statements 2014.pdf
Eimskip - Uppgjor 2014.pdf