Icelandic
Birt: 2015-02-26 13:15:04 CET
Fagfjárfestasjóðurinn KLS
Reikningsskil

Ársreikningur fagfjárfestasjóðsins KLS vegna ársins 2014

Fagfjárfestasjóðurinn KLS sem er í rekstri Stefnis hf. gaf út skuldabréf tekin til viðskipta hjá NASDAQ OMX Iceland hf. árið 2014.

  • Enginn hagnaður varð á rekstri sjóðsins á árinu samkvæmt rekstrarreikningi.
  • Hrein eign sjóðsins nam einni milljón króna samkvæmt efnahagsreikningi.
  • Ársreikningurinn var endurskoðaður af Ernst & Young ehf. í samræmi við alþjóðlega endurskoðunarstaðla. Það er álit endurskoðanda að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2014, efnahagi hans 31. desember 2014 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu 2014, í samræmi við lög um ársreikninga og reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag á heimasíðu Stefnis hf. www.stefnir.is

Nánari upplýsingar um ársreikning KLS veitir Flóki Halldórsson, í síma 444 7464.


KLS Arsreikningur 2014 SIGN.pdf