Icelandic
Birt: 2015-02-26 11:41:44 CET
Reykjavíkurborg
Fyrirtækjafréttir

Borgarráð samþykkir stofnun á nýjum skuldabréfaflokki

Borgarráð samþykkti á fundi sínum þann 26. febrúar 2015 eftirfarandi tillögu:

„Borgarráð staðfestir umboð fjármálastjóra til að efna til útgáfu á nýjum skuldabréfaflokki borgarsjóðs í lokuðu útboði og selja úr honum skuldabréf á árinu fyrir allt að 1,7 milljarð króna náist ásættanleg ávöxtunarkrafa. Endanlegir skilmálar skulu bornir undir borgarráð til samþykktar.“

Engar breytingar hafa verið gerðar á útgáfuáætlun Reykjavíkurborgar sem samþykkt var í borgarráði og birt í fréttakerfi NADAQ/OMX á Íslandi 8. janúar sl.

 

Nánari upplýsingar gefur:

Birgir Björn Sigurjónsson 
Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar 
Sími: 411-1111