English Icelandic
Birt: 2015-02-23 15:00:41 CET
Marel hf.
Fyrirtækjafréttir

Marel selur starfsemi sína í háhraða skurðartækni í Bretlandi

Marel hefur gengið frá samkomulagi um sölu á starfsemi sinni í háhraða skurðartækni (High Speed Slicing) sem staðsett er í Norwich, Bretlandi. Aðrir vöruflokkar sem heyra undir starfsemi félagsins í Norwich, þ.e. mótunarvélar (frozen portioning) og þjarkar (robotics) eru ekki hluti af sölunni, þar sem þeir falla undir kjarnastarfsemi Marel og styðja við vöruframboð og stefnu félagsins.

Salan er mikilvægt skref í áætluninni um einfaldara og skilvirkara Marel og styður þá stefnu félagsins að endurskoða vöruframboð með það að markmiði að auka slagkraftinn á þeim sviðum þar sem félagið hefur skýrt samkeppnisforskot og sterka markaðsstöðu. Starfsemin í háhraðaskurðartækni veltir árlega um 10 milljónum evra.

Kaupandinn er Middleby Corporation og er áætlað að gengið verði frá sölunni að fullu fyrir lok fyrsta ársfjórðungs 2015. Middleby er leiðtogi á sviði tæknibúnaðar fyrir matvælaþjónustuiðnaðinn og þróar og framleiðir búnað og tæki sem notuð eru í matvælaþjónustu, mætvælavinnslu og heimaeldhúsum.