Icelandic
Birt: 2015-02-10 11:00:13 CET
TM hf.
Fjárhagsdagatal

Uppgjör fjórða ársfjórðungs 2014 birt þann 18. febrúar – kynningarfundur 19. febrúar kl. 8:30

TM mun birta árshlutauppgjör fyrir fjórða ársfjórðung 2014 eftir lokun markaða miðvikudaginn 18. febrúar næst komandi.

TM býður markaðsaðilum á kynningarfund um afkomu félagsins á fjórða ársfjórðungi kl. 8:30 fimmtudaginn 19. febrúar. Þar mun Sigurður Viðarsson forstjóri kynna uppgjörið og svara spurningum. Fundurinn fer fram í höfuðstöðvum TM að Síðumúla 24. 4. hæð.

Árshlutareikning og afkomutilkynningu verður hægt að nálgast á vef félagsins www.tm.is. Kynning á uppgjörinu verður einnig aðgengileg á sama stað við upphaf kynningarfundar.

Mögulegt verður að fylgjast með fundinum í gegnum vefinn á slóðinni: https://global.gotomeeting.com/join/487171189