Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 6. viku 2015 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 526.544 eigin hluti fyrir 14,5 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskiptaverð |
Kaupverð |
Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
4.2.2015 |
15:17 |
26.544 |
27,70 |
735.269 |
19.318.412 |
6.2.2015 |
10:41 |
75.000 |
27,60 |
2.070.000 |
19.393.412 |
6.2.2015 |
11:54 |
425.000 |
27,50 |
11.687.500 |
19.818.412 |
Samtals |
|
526.544 |
|
14.492.769 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.
TM hefur nú keypt samtals 19.818.412 hluti í félaginu sem samsvarar 94,4% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 509,5 milljónum króna. TM á nú samtals 2,61% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is
|