English Icelandic
Birt: 2015-02-06 08:51:19 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur janúar 2015

Í janúar nam fjöldi farþega í millilandaflugi 151 þúsund og jókst um 21% miðað við janúar á síðasta ári.  Framboð í millilandafluginu var aukið um 14%. Sætanýtingin var 76,7% og jókst um 6,2 prósentustig í mánuðinum á milli ára og hefur aldrei verið hærri í janúarmánuði.

Fjöldi farþega í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 20 þúsund í janúar og fækkaði um 4%.  Framboð í janúar var 2% minna en í janúar á síðasta ári og sætanýting var 66,9% samanborið við 68,9% í janúar 2014. Seldir blokktímar í leiguflugi voru 33% færri en í janúar á síðasta ári. Fraktflutningar minnkuðu um 4% á milli ára. Seldar gistinætur hjá Flugleiðahótelunum jukust um 31% á milli ára. Herbergjanýting var 67,2% eða 15,8 prósentustigum hærri en í janúar 2014.

      

MILLILANDAFLUG JAN 15 JAN 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 150.624 124.722 21%
Sætanýting 76,7% 70,5% 6,2 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 590,3 519,2 14%
       
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG JAN 15 JAN 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 19.637 20.384 -4%
Sætanýting 66,9% 68,9% -2,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 9,1 9,3 -2%
       
LEIGUFLUG JAN 15 JAN 14 BR. (%)
Flugvélanýting 87,5% 100,0% -12,5 %-stig
Seldir blokktímar 1.668 2.487 -33%
       
FRAKTFLUTNINGAR JAN 15 JAN 14 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 15.011 14.207 6%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.656 7.981 -4%
       
HÓTEL JAN 15 JAN 14 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.909 22.940 0%
Seldar gistinætur 15.391 11.788 31%
Herbergjanýting 67,2% 51,4% 15,8 %-stig

 

  

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 

 

 

 


Traffic Data - January.pdf