Icelandic
Birt: 2015-02-03 18:39:00 CET
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. : Stefna vegna innbrots í tölvukerfi
Fjarskiptum hf. hefur borist stefna þar sem gerð er krafa um bætur vegna
tjóns
sem einstaklingur telur sig hafa orðið fyrir vegna innbrotsþjófnaðar
erlends
tölvuhakkara á heimasíðu Vodafone í nóvember 2013 og í kjölfarið
dreifingu
þjófsins og annarra á hinum stolnu gögnum. Gerð er krafa um skaða- og
miskabætur
að fjárhæð kr. 8.424.500., auk vaxta og málskostnaðar.

Fjarskipti
hf. mun á næstunni kynna sér rökstuðning fyrir stefnunni og taka
afstöðu til
hennar fyrir dómi. Í ljósi málavaxta telja Fjarskipti hf. þó
verulegan vafa
leika á hvort skilyrði bótaskyldu séu fyrir hendi. Fjarskipti hf.
álítur
jafnframt, telji dómstólar félagið yfirleitt bótaskylt, líklegt að
dæmdar
fjárhæðir í þessu eða öðrum hliðstæðum málum, sem boðuð hafa verið, hafi
í öllu
falli óveruleg áhrif á rekstur og efnahag félagsins. Við þetta mat er
hliðsjón
höfð af óvissu um bótaskyldu sem og dómafordæmum um ákvörðun
fjárhæðar
miskabóta, umfangi rekstrarins auk þess sem krafan kann að falla
undir
tryggingaskilmála félagsins. Gerð verður grein fyrir þessari og
mögulegum
frekari málshöfðunum í skýringum ársfjórðungsuppgjöra eða eftir því
sem við
getur átt.








[HUG#1891499]