English Icelandic
Birt: 2015-02-03 17:11:16 CET
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Birting uppgjörs 4. ársfjórðungs 2014

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung ársins 2014, fimmtudaginn 5. febrúar 2015. Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 6. febrúar 2015 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Þingsal 2. Morgunverður verður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast/