Icelandic
Birt: 2015-01-26 10:24:23 CET
Brim hf.
Fyrirtækjafréttir

HB Grandi hefur samið um vinnslu- og lestarbúnað í nýja ísfisktogara

HB Grandi hefur samið við Skagann á Akranesi og 3X Technologies á Ísafirði um að setja upp nýjan vinnslu- og lestarbúnað í Engey RE, Akurey AK og Viðey RE, nýja ísfisktogara sem HB Grandi fær afhenta á árunum 2016 og 2017. Samningarnir hljóða samtals upp á um 1.190 milljónir króna og mun vinna við uppsetninguna fara fram á Akranesi.

Um er að ræða tvo samninga, annars vegar um búnað á vinnsludekki og hins vegar um sjálfvirkt flutningakerfi kara.  Með sjálfvirka flutningakerfinu þarf ekki lengur að vinna við að setja fisk í kör og ísa hann í lest togaranna. Lest skipanna verður því mannlaus. Flutningskerfið mun bæta vinnuaðstöðu sjómanna verulega, tryggja aukin gæði og lækka rekstrarkostnað.  Búnaðurinn á vinnsludekki mun einnig bæta vinnuaðstöðu og tryggja betri meðhöndlun fisks,  lifrar, hrogna og slógs, afkastamikla blóðgun og slægingu og betri kælingu.

Nánari upplýsingar má sjá á heimasíðu HB Granda: www.hbgrandi.is