English Icelandic
Birt: 2015-01-06 17:57:11 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur desember 2014

Í desember flutti félagið 159 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 13% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 11% og sætanýting var 78,6% samanborið við 76,1% á sama tíma í fyrra. Farþegar í millilandaflugi félagsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2014. Þeir voru alls 2,6 milljónir og fjölgaði um 15% frá árinu 2013. 

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru rúmlega 18 þúsund í desember og fækkaði um 8% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 9% samanborið við desember 2013. Sætanýting nam 65,7% og jókst um 0,7 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 24% á milli ára. Fraktflutningar drógust saman um 1% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 55,8% samanborið við 45,7% í desember í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 159.311 140.615 13% 2.605.483 2.257.295 15%
Sætanýting 78,6% 76,1% 2,4 %-stig 80,4% 79,3% 1,1 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 606,3 547,5 11% 9.673,3 8.320,3 16%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 18.198 19.752 -8% 292.706 307.309 -5%
Sætanýting 65,7% 65,0% 0,7 %-stig 71,5% 71,1% 0,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 8,7 9,5 -9% 147,6 154,5 -5%
             
LEIGUFLUG DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 87,5% 90,9% -3,4 %-stig 94,2% 91,0% 3,2 %-stig
Seldir blokktímar 1.689 2.219 -24% 21.044 28.089 -25%
             
FRAKTFLUTNINGAR DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 14.684 14.206 3% 216.617 201.796 7%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.047 8.124 -1% 97.660 94.787 3%
             
HÓTEL DES 14 DES 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.909 22.940 0% 316.773 314.603 1%
Seldar gistinætur 12.774 10.481 22% 239.522 222.320 8%
Herbergjanýting 55,8% 45,7% 10,1 %-stig 75,6% 70,7% 4,9 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 

 


Traffic Data - December.pdf