Icelandic
Birt: 2014-12-31 13:17:46 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

VIÐSKIPTAYFIRLIT 2014 – NASDAQ ICELAND

Reykjavík, 31. desember, 2014 – Nasdaq (Nasdaq:NDAQ) gefur út viðskiptayfirlit mánaðarlega fyrir kauphallir sínar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Helstu atriði úr viðskiptayfirliti Nasdaq Iceland (Kauphallarinnar) fyrir árið 2014 eru eftirfarandi:    

Hlutabréf:

·         Heildarviðskipti með hlutabréf á árinu námu 292 milljörðum eða 1.182 milljónum á dag.  Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf árið 2013 251 milljarður eða 1.018 milljónir á dag. Þetta er 16% veltuaukning frá fyrra ári.

·         Mest voru viðskipti með bréf Icelandair Group (ICEAIR) 71,9 milljarðar, Marel (MARL) 32,6 milljarðar og Haga (HAGA) 31,6 milljarðar.  Á Aðalmarkaði hækkaði verð bréfa Össurar mest eða um 58% á árinu og næst verð bréfa HB Granda um 54%.  Á First North markaðnum hækkaði verð bréfa Century Aluminium mest eða 187%.

·         Úrvalsvísitalan (OMXI8) hækkaði um 4,1% á árinu og stendur nú í 1311 stigum. Heildarvísitala hlutabréfa hækkaði um 10,6%. 

·         Á Aðalmarkaði Kauphallarinnar var Arion banki með mestu hlutdeildina í viðskiptum 26,8%, Íslandsbanki næst með 21,6% og Landsbankinn með 19,9%.

·         Markaðsvirði skráðra hlutabréfa var í árslok 680 milljarðar, sem er 17% hærra en í fyrra.  Skráð voru 17 félög, þar af 3 á First North. Á árinu 2014 voru 2 hlutabréf nýskráð á Aðalmarkað, N1 og HB Grandi sem flutti sig yfir af First North. 

Skuldabréf:

·         Heildarviðskipti með skuldabréf námu 1.533 milljörðum á árinu sem samsvarar 6,6 milljarða veltu á dag, samanborið við 7,4  milljarða veltu á dag árið 2013. Alls námu viðskipti með ríkisbréf 1.282 milljörðum en viðskipti með íbúðarbréf námu 200 milljörðum. Þetta er 15% samdráttur í meðaldagsveltu milli ára.

·         Á árinu hækkuðu allar skuldabréfavísitölur Kauphallarinnar. Mest hækkaði 10 ára óverðtryggða vísitalan, eða um 13,5% og næst mest 5 ára óverðtryggða vísitalan, eða um 10,6%.

Aðalvísitala skuldabréfa (NOMXIBB) hækkaði um 4,4% á árinu.

·         Á árinu var Landsbankinn með mestu hlutdeildina í viðskiptum 20,7%, Íslandsbanki næst með 19,7% og MP banki með 18,4%.

·         Í lok árs voru skráð skuldabréf samtals 166, hverra markaðsvirði var 2.009 milljarðar sem er 6% aukning frá fyrra ári.  Á árinu voru nýskráð 18 skuldabréf og 24 víxlar. Samtals útgáfa (nýskráningar og stækkanir) skuldabréfa voru að nafnvirði 310 milljarðar.

Fyrir frekari upplýsingar um tölfræði og tölfræðiáskrift sjá http://www.nasdaqomx.com/transactions/markets/nordic/statistics

#

 

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og  knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjadala. Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

 

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. 

         Fjölmiðlasamskipti:
         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         525 2844 - 868 9836


2014_1231_Viskiptayfirlit fyrir 2014.pdf