Icelandic
Birt: 2014-12-18 20:08:29 CET
Ríkisútvarpið ohf.
Fyrirtækjafréttir

Tilkynning frá Ríkisútvarpinu ohf.

Þann 1. október sl. tilkynnti RÚV um að samkomulag hefði náðst milli félagsins og Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkissins sem er eigandi að skuldabréfi í 1. flokki 2000 um frest á greiðslu skuldabréfsins á gjalddaga 1.október til 31.desember 2014.

Tilkynnist hér með að samkomulag hefur náðst á milli aðila um að framlengja þann frest til 31. mars 2015. Erfið fjárhagsstaða RÚV veldur því að ekki er bolmagn til að greiða afborgunina, en hún er að upphæð um 190 m.kr. Þar að auki er samkomulag um að kröfuhafar beiti ekki vanefndaúrræðum af þessu tilefni og að ekki verði gengið að eignum félagsins á þessu tímabili.  Frestunin mun því ekki hafa áhrif á kjör skuldabréfsins og mun sú fjárhæð sem frestast bera sömu kjör og skuldabréfið þennan tíma og ekki hafa í för með sér kostnað í formi dráttarvaxta eða vanskilagjalda. 

Stjórn RÚV vinnur nú að undirbúningi á sölu eigna félagsins með það að markmiði að minnka skuldsetningu félagsins. Stjórn RÚV tók ákvörðun á stjórnarfundi sínum þann 18. desember 2014 að hefja formlegt sölu- og skipulagsferli lóðarinnar að Efstaleiti 1 en borgarráð samþykkti á fundi í október að hefja vinnu með RÚV með það að markmiði að endurskipuleggja svæðið, m.a. fyrir íbúðabyggð.

Ríkisútvarpið hefur jafnframt til skoðunar frekari aðgerðir til þess að tryggja rekstrarhæfi félagsins,   þ. á m. hugsanlega sölu Útvarpshússins, og mun vinna að þeim aðgerðum í samráði við stjórnvöld.