Icelandic
Birt: 2014-12-17 19:19:27 CET
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. : Héraðsdómur úrskurðar um frávísunarkröfu Tals
Héraðsdómur Reykjavíkur felldi fyrr í dag úrskurð um frávísunarkröfu í
máli
Vodafone (Fjarskipta hf.) gegn Tali (IP-Fjarskiptum ehf.

Í tilkynningu
Fjarskipta til Kauphallar, dags. 17. mars 2014,  var upplýst að
Vodafone
(Fjarskipti hf.) hefði stefnt Tali (IP-Fjarskiptum ehf.) fyrir
Héraðsdómi
Reykjavíkur til greiðslu reikningsskuldar, vegna fjarskiptaþjónustu
sem
Vodafone veitti Tali á grundvelli samninga á árunum 2011 og 2012.
Krafa
Vodafone nam  rúmlega 117 milljónum króna og krafðist félagið þess að fá
þá
upphæð greidda auk vaxta.

Undir rekstri málsins fór Tal fram á frávísun
þess. Með úrskurði héraðsdóms
Reykjavíkur frá því fyrr í dag er frávísunarkrafa
Tals tekin til greina. Í ljósi
þess að ekki er um efnislega niðurstöðu að ræða
munu lögmenn Vodafone nú kynna
sér þá formannmarka sem héraðsdómur telur vera á
málatilbúnaðinum og meta hvort
málinu verði skotið til Hæstaréttar. Allt að
einu mun kröfunni verða haldið til
streitu í því skyni að málið fái efnislega
niðurstöðu, enda er afstaða Vodafone
að fyrirliggjandi samningar milli
félaganna feli í sér ótvíræða greiðsluskyldu
af hálfu Tals. Rétt er að taka
fram að óvissa ríkir áfram um efnislega
niðurstöðu dómsmálsins. Verði Tal að
endingu dæmt til greiðslu á framangreindri
kröfu Vodafone mun það hafa jákvæð
áhrif á fjárhag Vodafone.

Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem
málinu vindur fram.




[HUG#1881373]