Reglubundin tilkynning um kaup TM á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun.
Í 50. viku 2014 keypti Tryggingamiðstöðin hf. (TM) 500.000 eigin hluti fyrir 13,9 m.kr. eins og hér segir:
Dagsetning |
Tími |
Keyptir hlutir |
Viðskiptaverð |
Kaupverð |
Hlutir í eigu TM eftir viðskipti |
12.12.2014 |
13:37 |
500.000 |
27,75 |
13.875.000 |
16.518.668 |
Samtals |
|
500.000 |
|
13.875.000 |
|
Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem var hrint í framkvæmd 2. maí 2014, sbr. og tilkynningu til Kauphallar 30. apríl 2014.
TM hefur nú keypt samtals 16.518.668 hluti í félaginu sem samsvarar 78,7% af þeim eigin hlutum sem að hámarki verða keyptir samkvæmt áætluninni. Kaupverð hinna keyptu hluta nemur samtals 420,5 milljónum króna. TM á nú samtals 2,17% af heildarhlutafé félagsins.
Samkvæmt endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 21.000.000 hlutir og fjárhæð endurkaupanna verður aldrei meiri en 600 milljónir króna. Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur á aðalfundardegi félagsins 2015 en þó aldrei síðar en 31. mars 2015 ef kaupum samkvæmt áætluninni verður ekki lokið áður. Endurkaupáætlunin er framkvæmd í samræmi við II. kafla viðauka reglugerðar nr. 630/2005 um innherjaupplýsingar og markaðssvik.
Nánari upplýsingar veitir
Sigurður Viðarsson, forstjóri
s: 515-2609
sigurdur@tm.is
|