English Icelandic
Birt: 2014-12-08 16:43:30 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur nóvember 2014

Í nóvember flutti félagið um 161 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 12% fleiri en í nóvember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 10% og sætanýting var 76,9% samanborið við 74,0% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 21,9%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 21 þúsund í nóvember og fækkaði um 1% á milli ára. Sætanýting nam 72,5% og hækkaði um 1,1 prósentustig frá síðasta ári. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 20% á milli ára. Fraktflutningar stóðu í stað á milli ára. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 71,0% samanborið við 65,5% í nóvember í fyrra.

     

MILLILANDAFLUG NÓV 14 NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 161.024 143.326 12% 2.446.302 2.116.680 16%
Sætanýting 76,9% 74,0% 2,9 %-stig 80,5% 79,5% 1,0 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 636,3 576,1 10% 9.067,0 7.772,8 17%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG NÓV 14 NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 21.235 21.423 -1% 274.508 287.557 -5%
Sætanýting 72,5% 71,4% 1,1 %-stig 71,8% 71,5% 0,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 9,1 9,2 -1% 138,9 145,0 -4%
             
LEIGUFLUG NÓV 14 NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 85,7% 90,0% -4,3 %-stig 94,8% 91,0% 3,8 %-stig
Seldir blokktímar 1.676 2.096 -20% 19.344 25.871 -25%
             
FRAKTFLUTNINGAR NÓV 14 NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 15.096 15.168 0% 201.933 187.590 8%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.049 8.057 0% 89.613 86.663 3%
             
HÓTEL NÓV 14 NÓV 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.170 22.200 0% 293.864 291.663 1%
Seldar gistinætur 15.731 14.549 8% 226.748 211.839 7%
Herbergjanýting 71,0% 65,5% 5,4 %-stig 77,2% 72,6% 4,5 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010

 


Traffic Data - November.pdf