English Icelandic
Birt: 2014-12-08 10:00:00 CET
Nasdaq Nordic
Fjárfestatilkynningar

ENDURSKOÐUN SAMSETNINGAR OMXI8 VÍSITÖLUNNAR

Reykjavík, 8. desember, 2014 – Nasdaq (NASDAQ:NDAQ) tilkynnir í dag niðurstöður endurskoðunar á OMX Iceland 8 vísitölunni (Nasdaq Iceland: OMXI8), sem gerð er tvisvar á ári. Endurskoðuð samsetning tekur gildi 2. janúar 2015. Ein breyting verður á samsetningunni. Eimskipafélag Íslands kemur nýtt inn í vísitöluna í stað Sjóvá-Almennra trygginga.

Samsetning OMXI8 vísitölunnar frá og með 2. janúar 2015 verður eftirfarandi:

Eimskipafélag Íslands hf.

Hagar hf.

HB Grandi hf.

Icelandair Group hf.

Marel hf.

N1 hf.

Tryggingamiðstöðin hf.

Vátryggingafélag Íslands hf.

 

OMX Iceland 8 vísitalan er Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland (Kauphöllin) og er samsett af þeim átta félögum sem hafa mestan seljanleika í Kauphöllinni. Vægi félaga í OMX Iceland 8 vísitölunni ræðst af flotleiðréttu markaðsvirði, sem þýðir að einungis það hlutafé sem ætla má að myndi grunn að virkum viðskiptum í Kauphöllinni er hluti af vísitölunni.

#

Um Nasdaq

Nasdaq  (Nasdaq:NDAQ) er leiðandi í þjónustu á sviði verðbréfaviðskipta, kauphallartækni, upplýsingaþjónustu og þjónustu við skráð fyrirtæki í sex heimsálfum. Nasdaq gerir viðskiptavinum sínum kleift að skipuleggja, hagræða og framkvæma framtíðarsýn sína í viðskiptum af öryggi, með margreyndri tækni sem veitir gagnsæi og innsýn í nútíma alþjóðlega fjármálamarkaði. Nasdaq er frumkvöðull í rafrænum kauphallarviðskiptum, en tækni þess er notuð á yfir 70 mörkuðum í 50 löndum og knýr um það bil ein af hverjum 10 viðskiptum í heiminum. Nasdaq er heimili meira en 3,400 skráðra fyrirtækja að markaðsvirði yfir 8,5 billjón Bandaríkjadala. Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland, Nasdaq Riga, Nasdaq Stockholm, Nasdaq Tallin, Nasdaq Vilnius, Nasdaq Clearing og Nasdaq Broker Services eru vörumerkin fyrir Nasdaq OMX Copenhagen A/S, Nasdaq OMX Helsinki Ltd., Nasdaq OMX Iceland hf., Nasdaq OMX Riga, AS, Nasdaq OMX Stockholm AB, Nasdaq OMX Tallinn AS, Nasdaq OMX Vilnius, Nasdaq OMX Clearing AB, Nasdaq OMX Broker Services AB. Nasdaq Nordic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Copenhagen, Nasdaq Helsinki, Nasdaq Iceland og Nasdaq Stockholm. Nasdaq Baltic lýsir sameiginlegri þjónustu Nasdaq Tallinn, Nasdaq Riga og Nasdaq Vilnius. Fyrir meiri upplýsingar, heimsæktu www.nasdaqomx.com

Fyrirvari vegna staðhæfinga um framtíðarhorfur

Þau mál sem hér er skýrt frá taka til staðhæfinga um framtíðarhorfur sem gerðar eru samkvæmt svonefndum Safe Harbor ákvæðum í bandarískum verðbréfalögum frá 1995 (Private Securities Litigation Reform Act of 1995). Þessar staðhæfingar taka meðal annars til en takmarkast þó ekki við staðhæfingar um afurðir og þjónustu Nasdaq. Við minnum á að þessar staðhæfingar eru ekki trygging fyrir framtíðarafkomu. Raunveruleg niðurstaða kann að vera allt önnur en sú sem fram kemur berum orðum eða með öðrum hætti í staðhæfingum um framtíðarhorfur. Í staðhæfingum um framtíðarhorfur eru ýmsir áhættu- og óvissuþættir eða aðrir þættir sem Nasdaq hefur ekki stjórn á. Þessir þættir byggjast á en takmarkast þó ekki við þætti sem gerð er grein fyrir í ársskýrslu Nasdaq á svonefndu Form 10-K og árshlutaskýrslum sem sendar eru til bandaríska verðbréfaeftirlitsins. Við tökumst ekki á hendur neinar skuldbindingar um að endurskoða að neinu leyti staðhæfingar um framtíðarhorfur. 

         Kristín Jóhannsdóttir
         kristin.johannsdottir@nasdaq.com
         525 2844


2014_1208_OMXI8 Endurskoun ISL.pdf