Icelandic
Birt: 2014-11-28 22:21:10 CET
Ríkisútvarpið ohf.
Reikningsskil

Ársreikningur Ríkisútvarpsins ohf. 1. september 2013 til 31. ágúst 2014

Betri afkoma en gert var ráð fyrir á seinni helmingi rekstrarárs RÚV

 

  • Á rekstrarárinu 2013-2014 var 271 m.kr. tap af rekstri RÚV eftir skatta
  • Rekstrarár RÚV er frá 1. september til 31. ágúst
  • Rekstrarhagnaður RÚV 2013-2014 fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 303 m.kr., þar af 278 m.kr. á seinni hluta rekstrarársins
  • Tap fyrir tekjuskatt var 339 m.kr., en áætlun hafði gert ráð fyrir að tap fyrir skatta yrði 357 m.kr.
  • Afkoma síðari hluta rekstrarársins er nokkru betri en áætlun gerði ráð fyrir þar sem tap fyrir skatta var 65 m.kr. í stað áætlunar upp á 83 m.kr.
  • Ársreikningur er áritaður án fyrirvara en með ábendingu um óvissu um framtíðarhorfur vegna mikillar skuldsetningar

 

Afkoma rekstrarársins

Á rekstrarárinu 1. september 2013 til 31. ágúst 2014 var 271 m.kr. tap af rekstri Ríkisútvarpsins ohf. eftir skatta.

Tap af rekstri félagsins fyrir tekjuskatt var 339 m.kr. í stað 357 m.kr. taps sem gert var ráð fyrir í endurskoðaðri rekstraráætlun sem kynnt var í mars. Þar af var tap á fyrri hluta rekstrarársins 274 m.kr. fyrir tekjuskatt, en tap á síðari hluta rekstrarársins var um 65 m.kr. í stað 83 m.kr. sem áætlað hafði verið. Afkoma á síðari hluta rekstrarársins er því 20% betri en gert var ráð fyrir í rekstraráætlun. Hagnaður RÚV fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 303 m.kr. á rekstrarárinu, þar af 278 m.kr. á seinni hluta rekstrarársins.

 

Á fyrri hluta rekstrarársins var tap upp á 136 m.kr. fyrir fjármagnsliði en á síðari hluta árs var hagnaður upp á 123 m.kr. fyrir fjármagnsliði. Rekstrartap fyrir fjármagnsliði fyrir rekstrarárið í heild var því 13 m.kr.

 

Skýringar

Rekstrarárið 2013-2014 einkenndist af umtalsverðum sviptingum í rekstri Ríkisútvarpsins. Haustið 2013 var fallið frá því að RÚV fengi útvarpsgjaldið óskert sem leiddi til umtalsverðrar lækkunar á væntum þjónustutekjum ársins 2014. Þetta leiddi til umtalsverðs niðurskurðar og umróts í nóvember og desember 2013. Ný lög um Ríkisútvarpið tóku gildi 1. janúar 2014 sem m.a. takmörkuðu sölu auglýsinga og kostunar. Þrír útvarpsstjórar störfuðu á árinu, Páll Magnússon til 18. desember 2013, Bjarni Guðmundsson 19. desember 2013– 9. mars 2014 og Magnús Geir Þórðarson frá 10. mars 2014. Nýtt skipurit tók gildi í maí 2014 og á sama tíma tók ný framkvæmdastjórn til starfa þar sem fækkað var um einn í framkvæmdastjórn. Umtalsverðar breytingar voru gerðar á skipulagi félagsins sumarið 2014, undirbúningur var hafinn fyrir sölu lóðar og möguleikar á sölu fasteigna félagsins skoðaðir.

 

Þær margvíslegu hagræðingar- og niðurskurðaraðgerðir sem gripið var til á rekstrarárinu koma ekki að fullu fram í rekstrarniðurstöðu ársins. Aðgerðirnar byrjuðu að skila sér á síðari hluta rekstrarársins, og verða enn sýnilegri í afkomu af rekstrinum á næstu misserum. Áætlanir næsta rekstrarárs gera ráð fyrir um 200 m.kr. raunlækkun rekstrarkostnaðar.

 

Tekjur ársins hækkuðu um 1% milli ára og er því um raunlækkun að ræða. Þjónustutekjur voru 3.317 m.kr. og tekjur af auglýsingum og öðru voru 2.082 m.kr. en það síðarnefnda lækkar um 4,7% á milli ára.  Helstu ástæðurnar fyrir lækkun auglýsingatekna eru ný lög sem takmarka möguleika RÚV á sölu auglýsinga og kostunar auk þess sem almennur samdráttur var á auglýsingamarkaði á seinni hluta rekstrarárs.

 

Rekstrarárið 2013-2014 var ár stórmóta með HM í fótbolta, Vetrarólympíuleikum og EM í handbolta en slíkum viðburðum fylgir ætíð aukinn kostnaður í rekstri RÚV. Á seinni hluta rekstrarársins var brugðist við þessari kostnaðaraukningu með því að selja hluta af sýningarrétti á leikjum á HM í knattspyrnu og auka þannig tekjurnar af þeim. Vorið 2013 gerði RÚV samning við Vodafone um uppbyggingu nýs stafræns dreifikerfis fyrir sjónvarp með það að markmiði að bæta þjónustu við landsmenn. Kerfið verður komið upp að fullu í ársbyrjun 2015. Kostnaður við nýja kerfið er nokkru meiri en við núverandi kerfi. Um 130 m.kr. kostnaðarauki var á liðnu ári af innleiðingu á nýja kerfinu og því að leggja niður eldra kerfið.

 

Nokkur ófyrirséður kostnaður féll til í tengslum við hagræðingaraðgerðir í nóvember 2013 en sá kostnaður fellur allur á rekstrarárið. Einskiptiskostnaður vegna skipta á yfirstjórn félagsins hefur allur verið gjaldfærður á nýliðnu rekstrarári en skipulagsbreytingar vorið 2014 leiða til þess að kostnaður við yfirstjórn mun lækka á yfirstandandi rekstrarári.

 

Launakostnaður á rekstrarárinu var 2.278 m.kr. en var 2.200 m.kr. á rekstrarárinu á undan. Hækkun á launakostnaði skýrist af kjarasamningshækkunum, kostnaði vegna stjórnendaskipta og breytinga á lífeyrisskuldbindingum, samtals um 130 m.kr. Launakostnaður fer lækkandi þar sem starfsmönnum hefur fækkað á árinu. Heildarfjöldi stöðugilda við upphaf rekstrarársins, í september 2013, var 297 en 270 í lok rekstarársins í ágúst 2014.  Fjöldi stöðugilda í lok október 2014 var 254, þar af eru 242 stöðugildi fastráðinna starfsmanna og 12 stöðugildi tímavinnumanna.  

 

Efnahagur og áritun

Samkvæmt efnahagsreikningi nema eignir félagsins 6,9 milljörðum kr., bókfært eigið fé í lok reikningstímabilsins er 382 m.kr. og eiginfjárhlutfall félagsins er 5,5%.

 

Reikningurinn er áritaður án fyrirvara en með ábendingu um óvissu um framtíðarhorfur vegna mikillar skuldsetningar og mikilvægi þess að skuldir félagsins verði lækkaðar.

 

Fjárhagsstaða RÚV

Stjórn RÚV hefur vakið athygli á því að fjárhagsstaða RÚV sé erfið og vandinn tvíþættur. Í fyrsta lagi er félagið yfirskuldsett eins og staðfest var í sjálfstæðri úttekt sem PwC vann fyrir stjórn á fjárhag félagsins í vor. Stjórn félagsins hefur unnið að lausn vandans, m.a. með undirbúningi að sölu eigna til að létta á skuldum. Hafin er vinna með Reykjavíkurborg við skipulag lóðar félagsins við Efstaleiti til að hægt verði að selja lóðina og unnið er að útfærslu á mögulegri sölu á fasteign félagsins.

 

Unnið er að nýjum samningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið með það að markmiði að samræmi verði á milli tekna og þess rekstrarkostnaðar sem fellur á félagið við að standa undir þeirri þjónustu sem samningurinn felur í sér. Stjórn RÚV hefur óskað eftir því að félagið fái útvarpsgjaldið óskert og fallið verði frá hugmyndum um að lækka útvarpsgjaldið frá því sem nú er.

 

 


 

 


Arsreikningur RUV ohf. 1.9.2013 til 31.8.2014.pdf