English Icelandic
Birt: 2014-11-06 17:59:10 CET
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur október 2014

Í október flutti félagið um 213 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 15% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 12% og sætanýting var 81,4% samanborið við 78,1% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 23,6%.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 24 þúsund í október og fækkaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 13% samanborið við október 2013. Sætanýting nam 73,3% og hækkaði um 1,9 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 25% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 3% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 72,2% samanborið við 61,9% í október í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG OKT 14 OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 212.904 184.835 15% 2.285.240 1.973.354 16%
Sætanýting 81,4% 78,1% 3,3 %-stig 80,8% 79,9% 0,9 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 780,8 696,6 12% 8.430,6 7.196,7 17%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG OKT 14 OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 23.957 26.521 -10% 253.274 266.134 -5%
Sætanýting 73,3% 71,4% 1,9 %-stig 71,8% 71,5% 0,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 10,4 11,9 -13% 129,8 135,8 -4%
             
LEIGUFLUG OKT 14 OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 90,9% 9,1 %-stig 95,6% 91,1% 4,5 %-stig
Seldir blokktímar 1.705 2.283 -25% 17.668 23.774 -26%
             
FRAKTFLUTNINGAR OKT 14 OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 18.007 17.933 0% 186.814 172.422 8%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 8.686 8.468 3% 81.406 78.606 4%
             
HÓTEL OKT 14 OKT 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.909 22.940 0% 271.694 269.463 1%
Seldar gistinætur 16.541 14.206 16% 211.017 197.290 7%
Herbergjanýting 72,2% 61,9% 10,3 %-stig 77,7% 73,2% 4,5 %-stig

     

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Traffic Data - October.pdf