Icelandic
Birt: 2014-11-05 17:25:00 CET
Sýn hf.
Reikningsskil
Fjarskipti hf. : Besta EBITDA ársfjórðungsniðurstaða í sögu félagsins
Árshlutareikningur Fjarskipta hf. fyrir 3. ársfjórðung 2014 var staðfestur
af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 5. nóvember 2014.

  *
EBITDA hagnaður ársfjórðungsins jókst um 4% og nam 1.023 m.kr. Þetta er
í
 fyrsta skipti sem EBITDA hagnaður félagsins fer yfir milljarð króna á
fjórðungi
og þar með sá mesti í sögu félagsins
  * Góð EBITDA niðurstaða
skýrist einkum af markvissum kostnaðaraðgerðum og
góðri tekjustýringu
 
* Framlegð jókst um 7% á tímabilinu -  8% aukning á fyrstu níu mánuðum ársins
 
* Kostnaðarverð lækkaði um 10% á ársfjórðungnum - lækkun 5% á fyrstu
níu
mánuðuðum ársins
  * Tekjur drógust saman um 2% á fjórðungnum -
tekjuaukning á fyrstu níu mánuðum
ársins 1%
  * Rekstrarkostnaður er 6% hærri
en árið áður -  öðru fremur vegna hærri
fjárfestinga á fjórðungnum og innri
kostnaðar sem fellur mismunandi til á milli
fjórðunga
  * Hagnaður eftir skatta
nam 476 m.kr. á ársfjórðungnum, jókst um 15%, og hefur
einnig ekki verið hærri
á fjórðungi. Hagnaðaraukning eftir skatta á fyrstu níu
mánuðum ársins 821 m.kr.
eða 27%
  * Eiginfjárhlutfall er nú 53% og hefur aldrei verið sterkara

Stefán
Sigurðsson, forstjóri:

"Niðurstaða þriðja ársfjórðungs Fjarskipta er
ánægjuleg. EBITDA-hagnaður
félagsins fór í fyrsta skipti yfir milljarð á
ársfjórðungi og hefur aldrei verið
meiri í sögu félagsins. Góð niðurstaða
skýrist helst af markvissum
kostnaðaraðgerðum og tekjustýringu. Tekjur voru
stöðugar en á sama tíma tókst
með markvissum aðgerðum að lækka kostnaðaverð sem
bætir framlegð umtalsvert.
Hagnaður er einnig að aukast samhliða lægri
afskriftum og sterkari efnahag
félagsins og hefur sömuleiðis aldrei verið
betri.

Mörg mikilvæg skref voru stigin í lykilverkefnum félagsins á
tímabilinu.
Fjárfestingar halda áfram að byggja undir öfluga þjónustu
Vodafone.
Háhraðaþjónustusvæði félagsins stækkar áfram með fjölgun 3G og 4G
senda um allt
land, einnig á haf út til sjófarenda, sem þegar er farið að skila
sér í fjölgun
viðskiptavina í sjávarútvegi. Uppbygging endurbætts sjónvarps- og
dreifikerfis
er vel á veg komin og á áætlun. Nýtt dreifikerfi mun gefa
tugþúsundum áhorfenda
kost á stóraukinni sjónvarpsþjónustu. Þá opnaði endurbætt
verslun Vodafone á
Akureyri formlega á dögunum, sú fyrsta hér á landi samkvæmt
nýrri forskrift
Vodafone Global. Á ársfjórðungnum var jafnframt lögð lokahönd á
nýja stefnu
fyrir félagið auk þess sem áfram var unnið að styrkingu innviða og
öryggismála.
Allt framangreint eru mikilvæg verkefni sem styrkja félagið til
framtíðar."


[HUG#1868982]

 


Arshlutareikningur 3F 2014.pdf.pdf
Frettatilkynning 3F 2014.pdf.pdf