English Icelandic
Birt: 2014-10-30 15:44:27 CET
Icelandair Group hf.
Reikningsskil

Opinn kynningarfundur 31. október - Uppgjör 3. ársfjórðungs 2014

Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 31. október 2014 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála, munu kynna afkomuna og svara spurningum. Kynningin hefst kl. 08:30 og verður í Víkingasal 4+5. Morgunverður verður í boði frá kl. 8:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Nasdaq OMX Iceland hf.

Hægt verður að fylgjast með fundinum beint á vefslóðinni: http://www.icelandairgroup.is/investors/reports-and-presentations/webcast/