Icelandic
Birt: 2014-10-23 21:10:15 CEST
Embla Medical hf
Reikningsskil
Össur - Þriðji ársfjórðungur 2014
Meginatriði á þriðja ársfjórðungi 2014
  * Hagnaður jókst um 26% milli ára.
Hagnaðurinn nam 16 milljónum Bandaríkjadala
    eða 13% af sölu, samanborið við
13 milljónir Bandaríkjadala og 12% af sölu á
    þriðja ársfjórðungi 2013.
  *
Sala nam 127 milljónum Bandaríkjadala, samanborið við 105 milljónir
   
Bandaríkjadala á þriðja ársfjórðungi 2013. Söluvöxtur var 21%, þar af 6%
   
innri vöxtur, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Sala á spelkum og
stuðningsvörum jókst um 19% samanborið við þriðja
    ársfjórðung 2013, þar af
var innri vöxtur 0%, hvort tveggja mælt í
    staðbundinni mynt.
  * Sala á
stoðtækjum jókst um 23% samanborið við þriðja ársfjórðung 2013, þar
    af var
innri vöxtur 15%, hvort tveggja mælt í staðbundinni mynt.
  * Framlegð nam 81
milljón Bandaríkjadala eða 64% af sölu, samanborið við 65
    milljónir
Bandaríkjadala og 62% af sölu á þriðja ársfjórðungi 2013.
  * EBITDA jókst um
30% og nam 29 milljónum Bandaríkjadala sem er 23% af sölu,
    samanborið við
22 milljónir Bandaríkjadala og 21% af sölu á þriðja
    ársfjórðungi 2013.
  *
Handbært fé frá rekstri nam 33 milljónum Bandaríkjadala eða 26% af sölu,
   
samanborið við 24 milljónir Bandaríkjadala og 23% af sölu á þriðja
   
ársfjórðungi 2013.

Endurskoðuð áætlun fyrir árið 2014

Vegna  mikils 
söluvaxtar  og  góðrar  arðsemi  í  ársfjórðungnum  hefur félagið
endurskoðað 
áætlun  fyrir  árið  2014. Endurskoðuð  áætlun  fyrir  árið 2014
er
eftirfarandi:
  * Söluvöxtur í staðbundinni mynt á bilinu 18-19% (var áður
16-18%)
  * Innri söluvöxtur á bilinu 4-5%, mælt í staðbundinni mynt (var áður
3-4%)
  * EBITDA framlegð sem hlutfall af sölu á bilinu 20-21% (var áður
19-20%)
  * Fjárfestingar (CAPEX) á bilinu 2,5-3,5% af sölu (óbreytt)
  * Virkt
skatthlutfall um 26% (óbreytt)

Jón Sigurðsson, forstjóri:

"Við  erum  mjög 
ánægð  með  góða  arðsemi  á  þessum  ársfjórðungi og erum með
sterkasta 
sjóðstreymi sem við höfum  séð hingað til. Sala  á stoðtækjum er mjög
góð  á
öllum okkar  helstu mörkuðum og  í helstu vöruflokkum.  Sala á spelkum
og
stuðningsvörum  er í takti við  væntingar okkar. Við höfum  lagt aukna
áherslu á
bætta  arðsemi  af  vöruframboði  okkar  og  einbeitum  okkur  að
hágæðavörum og
vörunýjungum sem skila nú jákvæðum niðurstöðum."

Símafundur
föstudaginn 24. október 2014 og morgunverðarfundur miðvikudaginn 29.
október
2014

Símafundur föstudaginn 24. október kl. 10:00

Símafundur   verður 
haldinn  föstudaginn  24. október  kl.  10:00 þar  sem  Jón
Sigurðsson,  
forstjóri,   og   Sveinn   Sölvason,  fjármálastjóri,  munu  kynna
niðurstöður 
ársfjórðungsins.  Fundurinn  fer  fram  á  ensku.  Innhringinúmer á
símafundinn
er 800-7219.

Morgunverðarfundur miðvikudaginn 29. október kl. 8:30

Félagið 
býður  jafnframt  til  morgunverðarfundar  á Íslandi miðvikudaginn 29.
október 
kl.  8:30 þar  sem  Jón  Sigurðsson,  forstjóri,  og  Sveinn 
Sölvason,
fjármálastjóri,  munu  kynna  niðurstöður ársfjórðungsins.
Morgunverðarfundurinn
verður  haldinn í höfuðstöðvum Össurar hf. að Grjóthálsi
5, 4. hæð. Vinsamlegast
tilkynnið þátttöku með því að senda tölvupóst á
netfangið mottaka@ossur.com.

[HUG#1865399]

 


Ossur financial statement 30.09.2014.pdf
Ossur Press Release Q3 2014 English.pdf
Q3 2014 Investor Presentation.pdf