English Icelandic
Birt: 2014-10-22 18:56:26 CEST
Marel hf.
Reikningsskil

Afkoma þriðja ársfjórðungs 2014

Söluhæsti fjórðungur frá upphafi- Bætt rekstrarniðurstaða

(Allar upphæðir í Evrum)

 

  •  Tekjur á þriðja ársfjórðungi 2014 námu 187,9 milljónum evra [Q3 2013: 156,9 milljónir evra].
     
  •  Leiðrétt EBITDA*  á þriðja ársfjórðungi var 25,9 milljónir evra sem er 13,8% af tekjum. EBITDA var 24,6 milljónir evra sem er 13,1% af tekjum [Q3 2013: 19,5 milljónir evra].
     
  •  Leiðréttur rekstrarhagnaður* (adj. EBIT) á þriðja ársfjórðungi var 17,4 milljónir evra, sem er 9,3% af tekjum. EBIT var 16,1 milljón evra sem er 8,6% af tekjum [Q3 2013: 12,9 milljónir evra].
     
  •  Hagnaður þriðja ársfjórðungs 2014 nam 9,8 milljónum evra [Q3 2013: 6,0 milljónir evra]. Hagnaður á hlut var 1,34 evru sent [Q3 2013: 0,81 evru sent á hlut].
     
  •  Handbært fé frá rekstri fyrir fjármagnsliði og skatta nam 29,7 milljónum evra á þriðja  ársfjórðungi 2014 [Q3 2013: 3,0 milljónir evra]. Nettó vaxtaberandi skuldir í lok fjórðungsins námu  191,3 milljónum evra [Q3 2013: 239,0 milljónir evra].
     
  •  Pantanabók stóð í 169,2 milljónum evra í lok þriðja ársfjórðungs 2014  samanborið við 156,4 milljónir evra í lok annars ársfjórðungs [Q3 2013: 138,3 milljónir evra].


Mótteknar pantanir á þriðja ársfjórðungi námu 201 milljónum evra. Marel seldi mörg verkefni í tengslum við stækkun og endurnýjun á verksmiðjum viðskiptavina í Evrópu og Bandaríkjunum.  Á vaxandi nýmörkuðum á borð við Afríku, Asíu og Suður-Ameríku hefur Marel unnið að uppsetningu fjöldamargra minni og meðalstórra uppbyggingarverkefna (e. Greenfield).

Fyrstu níu mánuði ársins hafa tekjur aukist um 4% frá fyrra ári samhliða því sem rekstrarhagnaður hefur aukist yfir árið.  Það sem af er ári nemur leiðréttur rekstrarhagnaður 32,7 milljónum evra.  Marel staðfestir áður útgefið mat um að innri tekjuvöxtur náist  á árinu með leiðréttum rekstrarhagnaði á bilinu 40-50 milljónir evra.  Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.

Árni Oddur Þórðarson, forstjóri:
„Þriðji ársfjórðungur var góður fyrir Marel. Við höfum skerpt á markaðssókn samhliða því að taka mikilvæg skref til að auka skilvirkni í rekstri. Sala  og tekjur jukust um 20% á milli ára  og rekstrarhagnaður hefur farið vaxandi.

Við höfum unnið að endurnýjun og stækkunum á verksmiðjum viðskiptavina okkar í Bandaríkjunum og Evrópu. Við höfum einnig aflað okkur nýrra viðskiptavina á vaxandi nýmörkuðum þar sem við höfum unnið að fjöldamörgum minni og meðalstórum uppbyggingarverkefnum í Afríku,  Asíu og Suður-Ameríku.

Það er meðbyr á mörkuðum Marel. Með markvissri markaðssókn og hagræðingaraðgerðum erum við  í góðri stöðu til að skapa verðmæti til framtíðar".

Hagræðing rekstrar
Áætlun um skýrari rekstraráherslur  (e. Simpler, Smarter and Faster Marel ) gengur eins og gert var ráð fyrir. Markmiðið er að mæta þörfum viðskiptavina með skilvirkari hætti og draga úr árlegum kostnaði um 20-25 milljónir á tímabilinu 2014-2015.

Flutningur á kjötiðnaðarstarfsemi Marel frá Oss til Boxmeer í Hollandi gengur samkvæmt áætlun. Boxmeer sinnir nú viðskiptavinum félagsins í kjöti, kjúklingi og frekari vinnslu matvæla. Flutningi á laxaiðnaði Marel til Stovring í Danmörku er nú lokið og frá og með þriðja ársfjórðungi gengur starfsemin þar á auknum afköstum og skilvirkni.

Á fyrstu níu mánuðum ársins var ráðist í aðgerðir sem áætlað er að munu lækka árlegan rekstrarkostnað um 8 milljónir evra.   Einskiptiskostnaður tengdur hagræðingaraðgerðum nemur um 12 milljónir evra.  Á þriðja ársfjórðungi nemur einskiptiskostnaður 1,3 milljónum evra  vegna undirbúnings til að auka enn frekar skilvirkni í framleiðslu félagsins  á komandi ársfjórðungum.

Söluhæsti fjórðungur  frá upphafi
Nýjar pantanir námu 201 milljónum evra á þriðja ársfjórðungi samanborið við 188 milljónir evra á öðrum ársfjórðungi 2014 og 163,3 milljónir evra í sama ársfjórðungi fyrir ári síðan.  Pantanabókin stendur í 169,2 milljónum evra sem er hækkun um 12,8 milljónir frá fyrri ársfjórðungi.

Horfur
Fyrstu níu mánuði ársins hafa tekjur aukist um 4% frá fyrra ári samhliða því sem rekstrarhagnaður hefur aukist á árinu.  Það sem af er ári nemur leiðréttur rekstrarhagnaður 32,7 milljónum evra.  Marel staðfestir áður útgefið mat um að innri tekjuvöxtur náist  á árinu með leiðréttum rekstrarhagnaði á bilinu 40-50 milljónir evra.  Megináhersla er á aukna skilvirkni í markaðssókn og rekstri með það að markmiði að rekstrarhagnaður ársins 2017 verði yfir 100 milljónir evra.

Til meðal og lengri tíma litið, telur Marel að nýsköpun og sterk markaðsstaða um allan heim í öllum iðnuðum félagsins muni skila góðum vexti og aukinni arðsemi.  Framtíðarhorfur eru góðar og gert er ráð fyrir því að markaðsvöxtur nemi 4-6%  á næstu árum. Markmið Marel er að halda áfram að vaxa hraðar en markaðurinn.

Engu að síður má gera ráð fyrir að afkoman verði breytileg milli ársfjórðunga vegna efnahagsþróunar á heimsvísu, sveiflna í pöntunum og tímasetningar stærri verkefna.

Vinsamlegast athugið að tilkynning þessi tekur aðeins til helstu þátta uppgjörsins en uppgjörstilkynning í fullri lengd á ensku er aðgengileg á heimasíðu Marel: www.marel.com/2014Q3
Þar er m.a. að finna lykiltölur og yfirlit yfir markaði félagsins.

Kynningarfundur 23. október 2014

Marel boðar til kynningarfundar um afkomu félagsins fimmtudaginn 23. október  kl. 8:30 í húsnæði félagsins að Austurhrauni 9, Garðabæ. Fundinum verður einnig netvarpað: www.marel.com/webcast.

Birtingardagar fyrir reikningsárið 2015
 4. ársfjórðungur  2014                                4. febrúar 2015
 Aðalfundur 2014                                          4. mars  2015
 1. ársfjórðungur 2015                                 29. apríl 2015
 2. ársfjórðungur 2015                                 29. júlí 2015
 3. ársfjórðungur 2015                                 28. október 2015
 4. ársfjórðungur  2015                                3. febrúar 2016 

Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaðar.

Frekari upplýsingar veita:
Linda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjárstýringar og fjárfestatengsla. Símar: 563 -8464 og 825-8464
Auðbjörg Ólafsdóttir, sérfræðingur í fjárfestatengslum. Símar: 563-8626 og 853-8626


Financial Statements - Q3 2014.pdf
Q3 2014 frettatilkynning_PDF.pdf