English Icelandic
Birt: 2014-09-08 10:23:58 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Flutningatölur ágúst 2014

Í ágúst flutti félagið um 354 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í ágúst á síðasta ári.  Framboðsaukning á milli ára nam 19% og sætanýting var 86,2% samanborið við 85,5% á sama tíma í fyrra.  Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum eða um 23,4% og voru þeir 55% af heildarfarþegafjölda félagsins í millilandaflugi í ágúst.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 32 þúsund í ágúst og fækkaði um 2% á milli ára.  Framboð félagsins í ágúst var dregið saman um 3% samanborið við ágúst 2013. Sætanýting nam 74,1% og jókst um 0,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 22% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 1% frá því á síðasta ári. Fjöldi seldra gistinótta á hótelum félagsins jókst um 3,9% milli ára. Herbergjanýting var 88,3% samanborið við 88,2% í ágúst í fyrra.

 

MILLILANDAFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 353.826 300.164 18% 1.811.906 1.573.484 15%
Sætanýting 86,2% 85,5% 0,7 %-stig 80,9% 80,5% 0,4 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 1.223,3 1.031,3 19% 6.652,8 5.678,9 17%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Fjöldi farþega 32.338 32.928 -2% 203.373 214.652 -5%
Sætanýting 74,1% 73,5% 0,6 %-stig 71,2% 71,6% -0,3 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 20,0 20,7 -3% 106,5 110,8 -4%
             
LEIGUFLUG ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Flugvélanýting 87,5% 90,9% -3,4 %-stig 94,8% 90,5% 4,3 %-stig
Seldir blokktímar 1.958 2.512 -22% 14.419 19.102 -25%
             
FRAKTFLUTNINGAR ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 23.477 21.560 9% 149.130 135.533 10%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 7.301 7.245 1% 64.405 61.598 5%
             
HÓTEL ÁGÚ 14 ÁGÚ 13 BR. (%) ÁTÞ 14 ÁTÞ 13 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 35.850 34.535 4% 225.643 223.567 1%
Seldar gistinætur 31.647 30.472 4% 175.670 167.059 5%
Herbergjanýting 88,3% 88,2% 0,1 %-stig 77,9% 74,7% 3,1 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 8407010


Traffic Data - August.pdf