Icelandic
Birt: 2014-08-28 15:00:01 CEST
Reykjavíkurborg
Reikningsskil

Árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar – júní 2014

Óendurskoðaður árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2014 var staðfestur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 28. ágúst.

Rekstrarniðurstaða samstæðu Reykjavíkurborgar, A og B hluta, var jákvæð um 3.723 mkr en áætlun gerði ráð fyrir jákvæðri niðurstöðu um 2.203 mkr. Rekstrarniðurstaðan er því 1.520 mkr betri en gert var ráð fyrir.  Helstu ástæður má rekja annars vegar til tekjufærslu matsbreytinga fjárfestingaeigna hjá Félagsbústöðum og hins vegar til áhrifa fjármagnsgjalda hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Þar vegur þyngst gengismunur og verðmæti innbyggðra afleiða.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var jákvæð um 6.667 mkr sem er 591 mkr lakari niðurstaða en áætlun gerði ráð fyrir.

Heildareignir samstæðunnar samkvæmt samanteknum efnahagsreikningi námu í lok júní samtals 479.873 mkr, heildarskuldir ásamt skuldbindingum voru 285.000 mkr og eigið fé nam 194.874 mkr en þar af nam hlutdeild meðeigenda 10.170 mkr.

Rekstrarniðurstaða A-hluta var neikvæð um 2.353 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði neikvæð um 1.711 mkr á tímabilinu og er niðurstaðan því lakari en gert var ráð fyrir, sem nemur 642 mkr.  Rekstrarniðurstaða fyrir fjármagnsliði var neikvæð um 1.973 mkr en áætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 1.496 mkr eða 477 mkr lakari en áætlun gerði ráð fyrir.   Lakari rekstrarniðurstaða skýrist meðal annars af minni tekjum af sölu byggingaréttar en áætlun gerði ráð fyrir og auknum kostnaði við vetrarþjónustu.

Fjárhagslegur styrkur A-hluta borgarsjóðs er mikill hvort sem litið er til eiginfjárstöðu eða hefðbundinna skuldaþekjuhlutfalla.

 

Rekstur Reykjavíkurborgar skiptist í A-hluta og B-hluta. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, þ.e. rekstur fagsviða, Eignasjóð og Bílastæðasjóð. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu borgarinnar, en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Faxaflóahafnir sf., Félagsbústaðir hf., Íþrótta- og sýningahöllin hf., Malbikunarstöðin Höfði hf., Orkuveita Reykjavíkur, Skíðasvæði höfuðborgarsvæðisins, Slökkvilið höfuðborgar­svæðisins bs., Sorpa bs. og Strætó bs, auk Aflvaka hf og Jörundar ehf.

 

Breytt uppgjör Orkuveitu Reykjavíkur. Þann 1. Janúar 2014 kom til framkvæmda það ákvæði raforkulaga sem gerir fyrirtækjum á þeim markaði  skylt að skilja á milli sérleyfis- og samkeppnishluta starfseminnar. Um áramótin tók Orka náttúrunnar ohf., dótturfélag sem er alfarið í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, til starfa á samkeppnismarkaði raforku en félagið var stofnað til að uppfylla þetta lagaákvæði. Veituþjónustan verður áfram rekin undir merkjum Orkuveitu Reykjavíkur, bæði þau lögbundnu skylduverkefni sveitarfélaga sem vatns- og fráveita eru og sérleyfisþjónusta rafmagns- og hitaveitu. Í móðurfélagi breyttrar samstæðu, Orkuveitu Reykjavíkur, verður sameignleg stoðþjónusta við dótturfélög s.s. fjármál, gæða, umhverfis- og öryggismál auk sameiginlegs þjónustusviðs.

 

 

Nánari upplýsingar veitir

Birgir Björn Sigurjónsson fjármálastjóri Reykjavíkurborgar sími 693-9321


Samsta Reykjavikurborgar jan. - juni 2014.pdf