Icelandic
Birt: 2014-08-27 14:39:05 CEST
Brim hf.
Reikningsskil

Uppgjör HB Granda hf. á öðrum ársfjórðungi 2014

  • Rekstrartekjur samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi voru 45,3 m€ og 87,3 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2013: 48,4 m€, 1H 2013: 99,3 m€)
     
  • EBITDA nam 9,5 m€ á öðrum ársfjórðungi og 18,7 m€ á fyrri árshelmingi (2F 2013: 7,5 m€, 1H 2013: 24,1 m€)
     
  • Hagnaður á öðrum ársfjórðungi var 4,9 m€ og á fyrri árshelmingi 10,6 m€ (2F 2013: 6,0 m€, 1H 2013: 16,2 m€)
     
  • Handbært fé frá rekstri nam 5,8 m€ á fyrri árshelmingi (1H 2013: 20,6 m€)
     
  • Langtímafjármögnun skammtímaskulda og nýsmíði uppsjávarskipa hefur verið tryggð.  Veltufjárhlutfall 30. júní 2014 var 0,69 en ráðgert er að það verði 1,15 eftir að fjármögnun lýkur.
     
  • Birgðir aukast um 10,3 m€ frá áramótum og liggur meginskýringin í árstíðasveiflum.
     
  • Norðanfiskur ehf. er hluti af samstæðureikningi frá 22. maí 2014.
     

Rekstur fyrstu sex mánaða ársins 2014

Rekstrartekjur HB Granda hf. á fyrri helmingi ársins 2014 námu 87,3 m€, samanborið við 99,3 m€ árið áður.  Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 18,7 m€ eða 21,4% af rekstrartekjum, en var 24,1 m€ eða 24,3% árið áður.  Kolmunnavertíð á öðrum ársfjórðungi skilaði hærri tekjum en árið áður, en skip félagsins veiddu 41 þús. tonn samanborið við 21 þús. tonn árið áður.  Áhrif fjáreignatekna og fjármagnsgjalda voru neikvæð um 1,3 m€, en voru jákvæð um 2,9 m€ á sama tíma árið áður.  Áhrif hlutdeildarfélaga voru jákvæð um 1,8 m€, en voru neikvæð um 1,5 m€ árið áður.  Hagnaður fyrir tekjuskatt var 13,4 m€ og hagnaður tímabilsins var 10,6 m€.

Efnahagur

Heildareignir félagsins námu 356,2 m€ í lok júní 2014. Þar af voru fastafjármunir 287,2 m€ og veltufjármunir 69,0 m€.  Eigið fé nam 195,6 m€ og eiginfjárhlutfall í lok júní var 54,8%, en var 60,5% í lok árs 2013. Heildarskuldir félagsins voru í júnílok 157,4 m€.

Sjóðstreymi

Handbært fé frá rekstri nam 5,8 m€ á tímabilinu, en nam 20,6 m€ á sama tíma fyrra árs.  Fjárfestingarhreyfingar námu 20,7 m€, þar af nam fjárfesting vegna nýrra uppsjávarskipa 12,3 m€.  Fjármögnunarhreyfingar námu 9,4 m€ og voru nettó afborganir langtímalána þar af 4,8 m€.  Handbært fé lækkaði því um 5,6 m€ og var í lok júní 6,7 m€.

Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna

Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrri helming ársins 2014 (1 evra = 155,33 kr) verða tekjur 13,6 milljarðar króna, EBITDA 2,9 milljarður og hagnaður 1,6 milljarðar.  Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 30. júní 2014 (1 evra = 153,64 kr) verða eignir samtals 54,7 milljarðar króna, skuldir 24,7 milljarðar og eigið fé 30,0 milljarðar.

Skipastóll og afli

Skipafloti félagsins var óbreyttur á tímabilinu. Unnið er að smíði tveggja nýrra uppsjávarveiðiskipa í Tyrklandi og gengur smíðin samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að fyrra skipið verði afhent í upphafi ársins 2015 og síðara í lok ársins 2015.  Einnig er verið að ganga frá samningum um smíði þriggja nýrra ísfisktogara og nemur heildarsamningsfjárhæðin 43.950 þús. evrur.    

Á fyrri árshelmingi ársins 2014 var afli skipa félagsins 25 þúsund tonn af botnfiski og 65 þúsund tonn af uppsjávarfiski.

Hluthafar

Arion banki annaðist hlutafjárútboð á hlutum í félaginu sem lauk þann 10. apríl 2014.  Vogun hf., Arion banki hf. og Fiskveiðahlutafélagið Venus hf. seldu 25,4% af eignarhlut sínum til 2.500 hluthafa.  Í kjölfar útboðsins voru hlutabréf félagsins tekin til skráningar á NASDAQ OMX þann 25. apríl 2014.  Markaðsvirði félagsins í lok annars ársfjórðungs var 51,9 milljarðar króna og lokagengi hlutabréfa var 28,5.  Hluthafar voru 2.392 í lok ársfjórðungsins.

Kynningarfundur þann 27. ágúst 2014

Opinn kynningarfundur um afkomu félagsins á öðrum ársfjórðungi verður haldinn miðvikudaginn 27. ágúst klukkan 16:15 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1. Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri mun kynna uppgjörið og svara spurningum.   

Fjárhagsdagatal fyrir 2014

- Þriðji ársfjórðungur 26. nóvember 2014

- Ársuppgjör 2014, 25. febrúar 2015

Samþykkt árshlutareiknings

Árshlutareikningur var samþykktur á stjórnarfundi HB Granda hf. 27. ágúst 2014.  Árshlutauppgjör HB Granda hf. er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards).  Árshlutauppgjörið hefur verið kannað af endurskoðendum félagsins.

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri, sími 858-1007.


Afkoma HB Granda hf 2F 2014.pdf
HB Grandi Arshlutareikn 30.06.2014.pdf