Icelandic
Birt: 2014-08-22 10:35:43 CEST
Íslandsbanki hf.
Árshlutareikningur - 6 mán.
Islandsbanki hf. : Annað árshlutauppgjör 2F2014
HELSTU NIÐURSTÖÐUR



  * Afkoma bankans eftir skatta var jákvæð um 6,4 ma. kr.
á 2F14 (2F13: 6,6 ma.
    kr.) og 14,7 ma. kr. á 1H2014 (1H2013: 11,2 ma.
kr.)

  * Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 14,5%  í 2F14 (2F2013: 17,4%) og
16,9% á
    fyrri hluta ársins (1H2013: 14,8%), þrátt fyrir að eigið fé bankans
hækkaði
    um 14% á milli ára úr 156 ma. kr. í 178 ma. kr.

  *
Eiginfjárhlutfall  var áfram sterkt eða 29,3% (mars14: 30,3%) og eiginfjár-
   
hlutfall A (Tier 1) var 26,1% (mars2014: 27,0%). Lækkunin sem skýrist að
   
hluta af 2% hækkun áhættugrunns (RWA) í 674 ma. kr. (1F2014: 664 ma.kr.).

  *
Hreinar vaxtatekjur voru 6,9 ma. kr á 2F2014 (2F2013: 7,0 ma. kr.) og 13,6
   
ma.kr. á 1H2014 (1H2014: 14,5 ma.kr.)  Vaxtamunur var 3,1% á 2F2014 (2F2013:
  
 3,4%) sem er í takt við langtíma áætlanir bankans .

  * Hreinar þóknanatekjur
voru 2,8ma. kr. á 2F2014  (2F2013: 2,7 ma. kr.) sem er
    hækkun um 5,5% á
milli ára og 5,7 ma.kr. á 1H2014 (1H13: 5,1 ma.kr.)
    Aukninguna má að mestu
rekja til markaða, eignastýringar og dótturfélaga.

  * Kostnaðarhlutfall
bankans var 56,0% (2F2013: 58,8%); lækkunina má rekja til
    til fækkunar
starfsmanna og áframhaldandi kostnaðaraðhalds.

  * Frá stofnun bankans hafa um
36,000 einstaklingar og um 4.200 fyrirtæki
    fengið afskriftir, eftirgjafir
eða leiðréttingar á skuldum sem nema 561 ma.
    kr.

  * Öllum stórum málum
sem lúta að fjárhagslegri endurskipulagningu hefur nú
    verið lokið. LPA
hlutfallið var 7,3% (mars14: 7,8%) og þau smærri mál sem
    eftir standa munu
hvert fyrir sig hafa lítil áhrif á hlutfallið.  Hlutfall
    vanskila umfram 90
daga var 3,5% (mars14: 3,8%).

  * Heildareignir voru 908 ma. kr. (mars14: 884
ma. kr.), sem er 3% aukning frá
    lokum fyrsta ársfjórðungs.  Lán til
viðskiptavina námu 604 ma. kr. (mars
    2014: 566 ma. kr.), sem er 7% hækkun á
milli fjórðunga.

  * Heildarinnlán jukust í 543 ma. kr. úr 530 ma. kr. í lok
mars 2013, sem má
    rekja til eðlilegra sveiflna í innlánum frá
viðskiptavinum og
    fjármálastofnunum.



Nánari upplýsingar um afkomu
bankans má finna í ítarlegri afkomutilkynningu hér
meðfylgjandi.



Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

"Afkoma annars ársfjórðungs var mjög
góð og skilaði bankinn arðsemi eigin fjár
upp á 14,5%. Síðustu tvo fjórðunga
höfum við séð góðan vöxt í útlánum og hafa
þau aukist um 9% frá áramótum. Við
sjáum einnig góðan vöxt í þóknanatekjum og
dreifist vöxturinn vel á milli
tekjusviða bankans.

Kostnaðarhagræðing gengur vel og lækkar
stjórnunarkostnaður um 13,4% á milli
ára. Við héldum áfram að auka sjálfvirkni
og að hagræða í útibúaneti bankans.
Afgreiðslunni í Kringlunni var breytt í
sjálfsafgreiðslu og við stefnum að því
að sameina útibú bankans í Lækjargötu og
Eiðistorgi í eitt útibú í vesturbæ
Reykjavíkur í byrjun næsta árs. Við sjáum
mikinn vöxt í notkun á Appinu og
viðskiptavinir hafa tekið nýjungunum vel en nú
geta þeir m.a. greitt reikninga,
millifært og haft gott yfirlit yfir
fjármálin.

Íslandsbanki gaf út skuldabréf í evrum í fyrsta sinn á
ársfjórðungnum að upphæð
100 milljónir evra og markaði útgáfan tímamót fyrir
bankann og íslenska
fjármálakerfið. Útgáfan fylgdi í kjölfar góðs
lánshæfismats, en í apríl fékk
bankinn einkunnina BB+/B með stöðugum horfum frá
S&P, sem er einu þrepi frá
íslenska ríkinu.

Traust staða Íslandsbanka á
íslenskum fjármálamarkaði hefur vakið athygli
erlendis og valdi alþjóðlega
fjármálatímaritið Euromoney Íslandsbanka besta
bankann á Íslandi annað árið í
röð. Íslandsbanki var einnig valinn besti
fjárfestingabankinn á Íslandi en
þetta er í fyrsta sinn sem verðlaun voru veitt
í þeim flokki hér á
landi."



FJÁRFESTAKYNNING Á KIRKJUSANDI

Í dag kl. 11.30 munu Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka, og Jón Guðni
Ómarsson, fjármálastjóri,
kynna afkomu bankans á opnum fjárfestafundi og svara
fyrirspurnum. Fundurinn
fer fram á íslensku og er haldinn í höfuðstöðvum bankans
að Kirkjusandi.  Boðið
verður upp á veitingar.



Skrá mig á fjárfestafund á
Kirkjusandi.



SÍMAFUNDUR Á ENSKU

Einnig er markaðsaðilum boðið upp á
símafund kl. 14.00 á ensku. Farið verður
yfir helstu atriði í íslenskum
efnahagsmálum og afkomu bankans. Vinsamlegast
skráið ykkur á símafundinn með að
senda póst á ir@islandsbanki.is. Fundargögn og
aðgangsorð vegna símafundar
verða send út til skráðra aðila 2 tímum fyrir
fundinn.



Öll gögn má nálgast á
vef fjárfestatengsla,
www.islandsbanki.is/fjarfestatengsl.



Nánari
upplýsingar veita:

  * Fjárfestatengill - Tinna Molphy,
tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma
    440 3187.
  * Upplýsingafulltrúi -
Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í
    síma 440
3925.


[HUG#1850507]

 


ISB - 2F14 Afkomutilkynning.pdf
ISB - 2Q14 Investor Presentation.pdf
ISB Condensed Consolidated Interim Financial Statements - 30.06.14.pdf