Icelandic
Birt: 2014-08-20 21:00:00 CEST
Sýn hf.
Fyrirtækjafréttir
Fjarskipti hf. gera samninga við Íslandsbanka og Landsbankann um frekari viðskiptavakt
Fjarskipti hf. (VOICE) hafa gert samning við Íslandsbanka um viðskiptavakt
á
útgefnum hlutabréfum félagsins, skráðum í NASDAQ OMX Iceland
(kauphöll).
Samningurinn tekur gildi í dag, 20. ágúst 2014, og kemur í stað
eldri samnings
milli sömu aðila, sem greint var frá í tilkynningu Fjarskipta
hf. til
kauphallarinnar dags. 2. desember 2012. Tilgangur samningsins er að
efla
viðskipti með hlutabréf í Fjarskiptum hf. í kauphöllinni í því skyni
að
seljanleiki hlutabréfanna aukist, markaðsverð skapist og
verðmyndun
hlutabréfanna verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.

Íslandsbanki
skal dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf í
Fjarskiptum hf. í
viðskiptakerfi kauphallarinnar, að lágmarki kr. 400.000 að
nafnvirði á gengi
sem Íslandsbanki ákveður hverju sinni. Sé gengið að tilboði
Íslandsbanka skal
bankinn leggja fram nýtt tilboð eins fljótt og mögulegt er þar
til
hámarksfjárhæð viðskipta fyrir hvern dag er náð. Munur á kaup- og
sölutilboðum
skal ekki vera meiri en 1,5% og frávik frá síðasta viðskiptaverði
ekki meira en
3%. Hámarksmagn viðskipta dag hvern sem Íslandsbanki er
skuldbundinn til að
kaupa eða selja skal vera 3.000.000 hlutir eða meira að
nafnvirði í sjálfvirkri
pörun innan dags. Séu eigin viðskipti bankans með bréf
félagsins yfir þessu
marki innan dags, falla niður skyldur um hámarksmun kaup-
og sölutilboða þann
daginn.


Fjarskipti hf. (VOICE) hafa gert samning við Landsbankann um
viðskiptavakt á
útgefnum hlutabréfum félagsins , skráðum í NASDAQ OMX Iceland
(kauphöll).
Samningurinn tekur gildi þann 1. september næstkomandi. Eldri
samningur
Fjarskipta hf. og Landsbankans um viðskiptavakt, sem greint var frá
í
tilkynningu hins fyrrnefnda til kauphallarinnar dags. 2. desember 2012,
fellur
úr gildi samhliða gildistöku nýja samningsins.

Landsbankinn mun daglega
setja fram, í eigin reikning, kaup- og sölutilboð í
hlutafé Fjarskipta, að
lágmarki kr. 400.000 að nafnvirði á gengi sem
Landsbankinn ákveður í hvert
skipti. Tilboðin skulu endurnýjuð innan 10 mínútna
eftir að þeim er tekið að
fullu. Munur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera
meiri en 1,5% og frávik frá
síðasta viðskiptaverði ekki meira en 3%. Ef
verðbreyting á hlutabréfum
Fjarskipta hf. innan dags nær 10% er Landsbankanum
heimilt að tvöfalda hámarks
verðbil milli kaup- og sölutilboða tímabundið þann
daginn. Hámarksmagn sem
Landsbankinn er skuldbundinn til að kaupa eða selja á
hverjum degi er 2.400.000
hlutir.

[HUG#1850138]