English Icelandic
Birt: 2014-07-30 17:37:45 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Möguleiki á skuldabréfaútgáfu Icelandair Group á Íslandi skoðuð

Stjórn Icelandair Group hf. hefur ákveðið að skoða möguleika á skuldabréfaútgáfu félagsins á Íslandi. Með skuldabréfaútgáfunni er stefnt að því að auka fjölbreytni í fjármögnun félagsins og búa félagið undir fyrirhugaða fjárfestingu í nýjum flugvélum. Seðlabanki Íslands hefur veitt félaginu heimild til þess að gefa út skuldabréf fyrir allt að EUR 60.000.000 og selja til innlendra fjárfesta fyrir íslenskar krónur.  Eftir er að útfæra nákvæmlega skilmála skuldabréfanna. Icelandair Group hefur náð samkomulagi við Íslandsbanka um að annast mögulega útgáfu og sölu skuldabréfanna.

   

Nánari upplýsingar veitir:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801