English Icelandic
Birt: 2014-07-17 15:07:57 CEST
Icelandair Group hf.
Fjárhagsdagatal

Birting uppgjörs 2. ársfjórðungs 2014

Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir annan ársfjórðung ársins 2014, miðvikudaginn 30. júlí 2014. Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 31. júlí 2014 á Icelandair Hótel Reykjavík Natura. Kynningin hefst kl. 08:30. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, og Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group, munu kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt helstu stjórnendum.

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is