Icelandic
Birt: 2014-06-30 14:30:11 CEST
Reginn hf.
Breyting á stjórn/framkvæmdastjórn/endurskoðendum

Nýr sviðsstjóri hjá Reginn hf.

Þær breytingar hafa orðið innan Regins að Páll V. Bjarnason hefur tekið við sem sviðsstjóri fasteignaumsýslu félagsins. Verksvið fasteignaumsýslu er yfirumsjón með fasteignum félagsins, rekstri, viðhaldi og endurnýjun. Ennfremur að annast móttöku eigna og koma þeim í leiguhæft ástand. Páll er 32 ára, með M.Sc. í byggingaverkfræði frá Háskólanum í Reykjavík, bygginga-tæknifræðingur frá sama skóla og húsasmíðameistari. Páll hefur starfað hjá Reginn síðan 2010.

Kristinn Jóhannesson fráfarandi sviðsstjóri mun fara í sérstök verkefni innan Regins, en þau helstu eru tengd „Uppfærslu og breytingum í Smáralind“ sem framundan eru á árunum 2014 til 2016 sem og Umhverfis- og orkumál innan samstæðunnar.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson

Forstjóri Regins hf.

S: 512 8900 / 899 6262