Icelandic
Birt: 2014-06-27 18:41:45 CEST
Hagar hf.
Reikningsskil

Hagar hf. árshlutauppgjör Q1 // mars - maí 2014

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir fyrsta ársfjórðung 2014/15 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 27. júní 2014. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2014 til 31. maí 2014. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dóttur­félaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Endurskoðendur félagsins, KPMG ehf., hafa hvorki endurskoðað né kannað reikninginn.

 

Helstu upplýsingar:

  • Hagnaður tímabilsins nam 939 millj. kr. eða 5,0% af veltu.
  • Vörusala tímabilsins nam 18.885 millj. kr.
  • Framlegð tímabilsins var 24,2%.
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 1.405 millj. kr.
  • Heildareignir samstæðunnar námu 26.752 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Handbært fé félagsins nam 3.503 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eigið fé félagsins nam 13.037 millj. kr. í lok tímabilsins.
  • Eiginfjárhlutfall var 48,7% í lok tímabilsins.

Vörusala tímabilsins nam 18.885 milljónum króna, samanborið við 18.379 milljón króna árið áður. Söluaukning félagsins er 2,75%. Hækkun 12 mánaða meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 3,24%. Framlegð félagsins var 4.574 milljónir króna, samanborið við 4.447 milljónir króna árið áður eða 24,2% sem er sama framlegðarhlutfall og árið áður. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 54 milljónir króna eða 1,7% milli ára en kostnaðarhlutfallið lækkar úr 17,1% í 16,9%.

Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 1.405 milljónum króna, samanborið við 1.336 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var 7,4%, samanborið við 7,3% árið áður.

Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 1.174 milljónum króna, samanborið við 1.046 milljónir króna árið áður.  Hagnaður eftir skatta nam 939 milljónum króna á tímabilinu, sem jafngildir 5,0% af veltu en hagnaður eftir skatta á fyrra ári var 837 milljónir.

Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.752 milljónum króna. Fastafjármunir voru 13.107 milljónir króna og veltufjármunir 13.645 milljónir króna. Þar af eru birgðir 5.105 milljónir króna en birgðir voru 5.567 milljónir króna ári áður og hafa því minnkað um 462 milljónir milli ára eða sem nemur 8,3%.

Eigið fé félagsins var 13.037 milljónir króna í lok tímabilsins og eiginfjárhlutfall 48,7%.  Heildarskuldir samstæðunnar voru 13.715 milljónir króna, þar af voru langtímaskuldir 5.321 milljón króna. Nettó vaxtaberandi skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 1.682 milljónir króna en 1.472 milljónir króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á tímabilinu.

Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 1.220 milljónum króna, samanborið við 948 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 221 milljón króna og fjármögnunar­hreyfingar 1.639 milljónir króna. Handbært fé í lok tímabilsins var 3.503 milljónir króna, samanborið við 3.144 milljónir króna árið áður.

 

 

Framtíðarhorfur:

Rekstur á fyrsta fjórðungi rekstrarársins 2014/15 er á áætlun og svipaður og á sama tímabili í fyrra. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir sambærilegum horfum í rekstri og á nýliðnu rekstrarári eins og kom fram í tilkynningu félagsins með síðasta ársuppgjöri.

Verið er að leggja lokahönd á hönnun nýs vöruhúss fyrir Banana og er gert ráð fyrir að framkvæmdir hefjist á haustmánuðum og að Bananar flytji starfsemi sína haustið 2015.  Stór hluti fjárfestingarinnar við nýtt vöruhús fellur til á núverandi rekstrarári.  Ákvarðanir um aðrar nýfjárfestingar hafa ekki verið teknar, en áhersla er lögð á fjárfestingu í rekstrarfjármunum núverandi verslana og vöruhúsa með það að markmiði að bæta þjónustu við viðskiptavini og að auka samkeppnishæfni félagsins.  Auk þess er félagið að skoða nýjar staðsetningar fyrir verslanir og unnið er að endurskoðun leigusamninga.

Undanfarin misseri hafa nýir aðilar komið inná markaði félagsins.  Gera má ráð fyrir aukinni samkeppni á dagvörumarkaði og sérvörumarkaði á næstu misserum.  Félagið hefur lagt áherslu á verkefni sem ætlað er að styrkja stöðu félagsins til lengri tíma og bæta vöruframboð þar sem tekið er tillit til óska viðskiptavina og breyttra aðstæðna á markaði. 

 

 

Fjárhagsdagatal 2014/15:

 

2. ársfjórðungur (1. mars – 31. ágúst): 23. október 2014

3. ársfjórðungur (1. mars – 30. nóvember): 8. janúar 2015

4. ársfjórðungur (1. mars – 28. feb): 12. maí 2015

 

 

Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.


Frettatilkynning Hagar arshlutareikningur 310514.pdf
Hagar arshlutareikningur 31 05 2014 m nofnum.pdf