Icelandic
Birt: 2014-06-05 15:54:38 CEST
CCP hf.
Fyrirtækjafréttir

Skipulagsbreytingar hjá CCP hf.

CCP hf tilkynnir í dag um skipulagsbreytingar í útgáfustarfsemi fyrirtækisins. Í kjölfar breytinganna eru lögð niður 49 störf hjá fyrirtækinu.

Skipulagsbreytingarnar eru liður í áherslubreytingum CCP í vöruþróun, þar sem lögð er áhersla á þróun og útgáfu tölvuleikja fyrir einn og sama leikjaheiminn; EVE veröldina. Skipulagsbreytingarnar varða útgáfustarfsemi CCP og hafa ekki áhrif á leikjaþróun fyrirtækisins.

Af þeim störfum sem lögð eru niður eru 27 þeirra í höfuðstöðvum fyrirtækisins í Reykjavík. CCP veitir öllum fráfarandi starfsmönnum stuðning og aðstoð við atvinnuleit.

   

Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri:

“Það er okkur þungbært að kveðja hæfileikaríkt starfsfólk okkar og vini. Fólk sem hefur lagt sitt af mörkum til fyrirtækisins og skilað mjög góðri vinnu við útgáfustarfsemi þess.

En í ljósi breyttra aðstæðna, og stefnubreytinga í vöruþróun fyrirtækisins, er ég sannfærður um að þessar skipulagsbreytingar muni til lengri tíma litið styrkja og efla starfsemi CCP.”

 

Frekari upplýsingar:

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Netfang: 
eldar@ccpgames.com
Sími 869 8179