English Icelandic
Birt: 2014-05-12 23:45:00 CEST
HS Orka hf.
Reikningsskil

HS Orka hf. leggur fram árshlutareikning fyrir fyrsta ársfjórðung 2014

Stjórn HS Orku hf samþykkti á fundi sínum í dag árshlutareikning fyrirtækisins fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2014. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, IFRS og er í íslenskum krónum. Árshlutareikninginn má finna á vefsíðu fyrirtækisins http://www.hsorka.is

Helstu atriði árshlutareikningsins eru þessi:

  • Rekstartekjur fyrirtækisins námu 1.899 milljónum á tímabilinu, samanborið við 1.947 m.kr. á sama tímabili 2013. Hagnaður tímabilsins af reglulegri starfsemi nam 90 m.kr. samanborið við 910 m.kr. tap á sama tímabili 2013. Heildarhagnaður var 75 m.kr, samanborið við 942 m.kr. tap á sama tímabili 2013.
     
  • EBITDA er alls um 828 m.kr. fyrstu þrjá mánuði 2014 en var 781 m.kr. á sama tímabili 2013.
  • Eiginfjárhlutfall 31. mars 2014 var mjög sterkt eða 58,0% og er óbreytt frá árslokum 2013.
     
  • Reiknaðir fjármagnsliðir höfðu afgerandi áhrif á afkomu fyrirtækisins eins og oft áður.  Þar vegur þyngst breyting á virði afleiða (framtíðarvirði orkusölusamninga sem tengjast álverði) sem er neikvætt 708 m.kr. en var neikvætt um 2.755 m.kr. á sama tímabili á árinu 2013.  Á móti vegur 226 m.kr. gengishagnaður á árinu 2013, á tímabilinu en á sama tímabili í fyrra var þessi hagnaður 936 m.kr.  
     
  • Regluleg starfsemi fyrirtækisins gengur vel og hækkaði EBITDA samanborið við sama tímabil í fyrra um 6% eða sem nam 82 m.kr. á milli sömu tímabila. Tekjur lækkuðu um 2% á milli tímabila eða um 47 m.kr. og námu 1.899 m.kr., en voru 1.947 m.kr. fyrstu þrjá mánuðina 2013. Á móti lækkaði rekstrarkostnaður um 6% eða sem nemur 82 m.kr. milli sömu tímabila. Megin ástæðan fyrir þessari lækkun tekna var lækkun álverðs en á móti kom að tekjur hafa aukist talsvert á smásölumarkaði og tekjur af sölu á heitu vatni hafa einnig aukist. Á kostnaðarhliðinni hefur rekstrarkostnaður orkuvera og flutningskostnaður lækkað, orkukaup hafa  aukist lítillega. Þá hefur skrifstofu og stjórnunarkostnaður lækkað, fyrst og fremst vegna kostnaðar við gerðardómsmál vegna orkusölusamnings við Norðurál á Grundartanga sem var umtalsverður fyrstu þrjá mánuði 2013 en er ekki til staðar 2014.
     

Frekari upplýsingar veitir Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku hf, í síma 855 9301.


HS Orka Financial Statement 31 March 2014.pdf