Icelandic
Birt: 2014-05-07 16:27:14 CEST
Reginn hf.
Reikningsskil

Reginn birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2014

Reginn mun birta uppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2014, eftir lokun markaða þriðjudaginn 27. maí 2014. Af því tilefni býður Reginn til opins kynningarfundar sama dag kl: 16:00 í Ármúla 4-6.

Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið.

Helgi S. Gunnarsson forstjóri Regins mun kynna uppgjörið og svarar spurningum að lokinni kynningu.

Samhliða verður kynnt uppfærð rekstraráætlun félagsins fyrir 2014. Áður birt rekstraráætlun gerði ráð fyrir að eignasafn Klasa Fasteignir ehf. yrði á bókum félagsins frá 1. janúar 2014. Uppfærð áætlun tekur mið af afhendingu eignasafnsins 1. maí 2014.

Boðið verður upp á léttar veitingar að fundi loknum.

Hægt verður að nálgast kynningarefni að kynningu lokinni á:

http://www.reginn.is/fjarfestar/

Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið:

 fjarfestatengsl@reginn.is

Nánari upplýsingar veitir:

Helgi S. Gunnarsson – Forstjóri – helgi@reginn.is – s.512 8900/899 6262

Jófríður Ósk Hilmarsd.– Fjárfestatengill – jofridur@reginn.is – s.512 8912/698 5231

 

 

 

 


Reginn birtir uppgjor Q1 2014.pdf