English Icelandic
Birt: 2014-04-29 15:14:29 CEST
Icelandair Group hf.
Fyrirtækjafréttir

Verkfallsboðun flugmanna Icelandair ehf.

Félag íslenska atvinnuflugmanna (FÍA) hefur boðað ótímabundið yfirvinnubann flugmanna Icelandair ehf. sem mun hefjast kl. 6:00 þann 9. maí 2014. Þá hefur verkfall flugmanna Icelandair ehf. verið boðað á eftirfarandi tímum:

Frá kl. 06:00 þann 9. maí 2014 til kl. 18:00 þann 9. maí 2014.
Frá kl. 06:00 þann 16. maí 2014 til kl. 18:00 þann 16. maí 2014.
Frá kl. 06:00 þann 20. maí 2014 til kl. 18:00 þann 20. maí 2014.
Frá kl. 06:00 þann 23. maí 2014 til kl. 06:00 þann 25. maí 2014.
Frá kl. 06:00 þann 30. maí 2014 til kl. 06:00 þann 3. júní 2014.

Náist ekki samkomulag milli félagsins og FÍA mun flugáætlun félagsins raskast vegna aðgerðanna. Óvíst er hvaða áhrif aðgerðirnar muni hafa á afkomu Icelandair Group hf.

 

Frekari upplýsingar:

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
bubbi@icelandairgroup.is
896 1455

Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála
bogi@icelandairgroup.is
665 8801